Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Æðri menntun í Svíþjóð

    Um sænska háskóla

    Í Svíþjóð er ríkið ábyrgt fyrir þeirri starfsemi sem fram fer á háskólasviðinu. Það eru þingið og ríkisstjórnin sem setja reglur og ákveða hvernig fjármagni skuli skipt. Nokkrar stofnanir sjá um framkvæmd á háskólasviðinu, þeirra á meðal er Högskoleverket. Í Svíþjóð eru til 14 ríkisháskólar og 22 aðrar ríkisreknar æðri stofnanir. Auk þess eru þrír skólar viðurkenndir til að veita rannsóknamenntun, það eru Chalmers Tækniháskólinn, Viðskiptaháskólinn í Stokkhólmi og Háskólinn í Jönköping. Munurinn á háskóla og öðrum æðri menntastofnunum felst meðal annars í því að háskólar mega útskrifa vísindamenn.

    Þá eru níu menntastofnanir sem bjóða upp á grunnháskólanám og nokkrar menntastofnanir sem mega útskrifa aðila sem sinna sálfræðimeðferð. 


    Aðgangskröfur háskóla og annarra æðri menntastofnana

    Vissar aðgangskröfur eru gerðar til æðri menntastofnanna í Svíþjóð, nefndar á sænsku behörighetskrav. Behörighetskrav er skipt í grunnhæfni og sértæka hæfni. Grunnhæfni er krafist vegna allrar æðri menntunar. Auk grunnhæfni er gerð krafa um sértæka hæfni í mörgum greinum. Á vefsíðu Högskoleverkets má finna nánari upplýsingar um hæfniskröfur.  

    Hver háskóli og æðri menntastofnun fyrir sig setur reglur um inntöku nemenda.


    Lengd námsins í háskólaeiningum

    Háskólanám er talið í einingum. Eitt ár, 40 vikna nám, svarar til 60 háskólaeininga og hver önn er því 30 eininga. Háskólaeiningar fyrir hvert námskeið eru ákveðnar með tilliti til þeirrar vinnu sem eðlileg er til að ná settum markmiðum í námskeiðinu. Markmiðin og fjöldi háskólaeininga eru gefin upp í námskrá.


    Próf og einkunnir

    Námskeiðum lýkur með prófi sem getur verið skriflegt eða munnlegt. Nemendur fá einkunnir fyrir þau námskeið sem þeir hafa tekið. Yfirleitt eru einkunnir með eftirfarandi formi; fall, staðið og mjög gott. Háskólar og aðrar æðri menntastofnanir geta þó einnig ákveðið að nota önnur einkunnakerfi.


    Háskólanám skiptist í þrjú námsstig

    Grunnnám byggir að mestu á þekkingu nemenda úr framhaldsskólanum. Framhaldsnám byggir á þekkingu sem nemendur hafa öðlast í grunnnámi. Rannsóknartengt nám byggir á þekkingu sem nemendur hafa öðlast í grunnnámi og framhaldsnámi.

    Grunnnám:

    • háskólapróf, 120 háskólaeiningar
    • kandidatsmenntun, 180 háskólaeininga
    Framhaldsnám
    • magistergráða, 60 háskólaeiningar 
    • meistaragráða, 120 háskólaeiningar
    Rannsóknartengt nám

    • licentiatgráða, 120 háskólaeiningar
    • doktorsgráða, 240 háskólaeiningar 

    Nánari upplýsingar um menntun í Svíþjóð og annars staðar á Norðurlöndum eru á vefsíðu Högskoleverket .


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 21.06.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang