Búslóð
Innan Evrópusambandsins er flutningur á vörum frjáls og því þarf yfirleitt ekki að tilkynna búslóð hjá Tullverket. Þó er skylda að tilkynna hluti sem um gilda sérlegar innflutningsreglur, til dæmis vopn, dýr, tóbak, áfengi og matvæli. Við flutning til Svíþjóðar frá Noregi eða Íslandi verður alltaf að tilkynna búslóðina til Tullverket og hægt að sækja um undanþágu frá greiðslu tolla af búslóð. Þá þarf ekki þarf að greiða toll og virðisaukaskatt af persónuleigum eigum. Til að geta fengið undanþágu frá greiðslu tolla þarf að uppfylla ákveðin skilyrði varðandi dvöl utan Svíþjóðar, hversu lengi hlutirnir hafa verið í eign þess sem tilkynnir og fleira.
Ef farartæki fylgir búslóðinni til Svíþjóðar þarf að hafa samband við Transportstyrelsen. Sjá nánari upplýsingar í kaflanum „Ökutæki“.
Útflutningur á listmunum
Þrátt fyrir frjálsan flutning á vörum milli ESB-ríkja gilda sérstakar reglur um útflutning á listmunum frá Svíþjóð. Hægt er að sækja um útflutningsleyfi, en það fer eftir hvers konar listmuni er um að ræða. Umsóknareyðublöð og upplýsingar um hvaða listmunir krefjast leyfis fást hjá Riksantikvarieämbetet. Ef flytja á listmuni til Íslands eða Noregs er mögulegt að sækja þurfi um leyfi. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Tullverket.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 18.06.2010