Sænska tryggingastofnunin Försäkringskassan sér um afgreiðslu almannatrygginga og lífeyris. Almannatryggingar í Svíþjóð ná til allra sem búa eða starfa í landinu. Þær eru fjárhagsleg aðstoð fyrir fjölskyldur og börn, fólk sem á við fötlun eða sjúkdóma að stríða, hefur orðið fyrir vinnuslysum eða er komið á ellilífeyrisaldur. Þar sem Svíar eru aðilar að Evrópusambandinu á fólk einnig rétt á almannatryggingum í öðrum ESB-ríkjum. Norrænir samningar gilda um einstaklinga frá Noregi og Íslandi og eiga þeir því einnig rétt á almannatryggingum í Svíþjóð.
Sjúkratryggingar
Veikindi
Ef þú veikist skyndilega áður en þú hefur skráð þig inn í landið og þarft að leita til heimilislæknis, á heilsugæslustöð eða á sjúkrahús, áttu rétt á læknisaðstoð á sömu kjörum og íbúar í viðkomandi sveitarfélagi, svo framarlega sem þú ert skráð/ur íbúi annars Norðurlandans eða ESB/EES-ríkis. Sama á við ef þú þarft skyndilega að leita tannlæknishjálpar. Í Svíþjóð hafa sveitarfélögin umsjón með heilsugæslu.
Hvert á að leita þegar veikindi koma upp?
Hafðu samband við heilsugæslustöð næst þér. Einnig er hægt að hafa samband við sérstakan heimilislækni. Ef um skyndileg veikindi er að ræða, á að fara á neyðarmóttöku á sjúkrahúsinu. Flest sveitarfélög gefa út bæklinga með símanúmerum, heimilisföngum og öðrum upplýsingum um heilsugæslustöðvar, stofur heimilislækna og sjúkrahús. Einnig eru þau með vefsíður þar sem þessar upplýsingarnar eru skráðar. Á Netinu er einnig hægt að komast að því hvaða sveitarfélagi maður heyrir til. Á heimasíðu sambands sænskra sveitarfélaga má finna vefslóðir sveitarfélaganna.
Veikindi - bótareglur
Þú byrjar á því að hafa samband við atvinnurekandann á fyrsta veikindadegi. Athugið að reglur um laun í veikindum eiga ekki við um einyrkja eða fólk í sjálfstæðum atvinnurekstri. Hafi fólk verið í fastri vinnu í meira en mánuð eða unnið samfleytt í 14 daga á það rétt á launum frá atvinnurekandanum fyrstu 14 veikindadagana. Þó eru ekki greidd laun fyrir fyrsta veikindadaginn, svokallaðan biðdag (karensdag). Laun í veikindum nema 80 % af launum fyrir 2. - 14. veikindadag. Ef þú ert ekki launþegi, geturðu átt rétt á greiðslum frá Försäkringskassan. Þú færð ekki greitt fyrsta veikindadaginn, en tilkynnir veikindi þín samt sem áður á fyrsta degi til Försäkringskassan.
SGI
SGI er skammstöfun á tekjumörkum til ákvörðunar sjúkradagpeninga, en þau miðast við árlegar launatekjur þínar. SGI er notað til útreiknings launa í veikindum, bóta til aðstandenda, bóta vegna smits, endurhæfingarbóta og barnabóta.
Læknisvottorð vegna veikinda í viku eða lengur
Þegar fólk er frá vinnu vegna veikinda lengur en í eina viku þarf það að framvísa læknisvottorði. Læknisvottorðið þurfa atvinnurekandi og Försäkringskassan til þess að meta hvort fólk eigi rétt á launum eða sjúkradagpeningum. Læknisvottorðið er aðeins staðfesting og veitir því ekki sjálfkrafa rétt á launum eða sjúkradagpeningum.
Sjúkratryggingar
Försäkringskassan getur ákveðið að greiða sjúkra- eða endurhæfingarbætur í stað sjúkradagpeninga. Þetta á við til dæmis þegar stofnunin metur að starfsgetan sé skert sem nemur a.m.k. fjórðungi vegna veikinda og ef búast megi við að starfsgetan verði skert í a.m.k. eitt ár í viðbót. Eins þarf að hafa reynt á öll endurhæfingarúrræði. Ef talið er að enn séu endurhæfingarúrræði fyrir hendi, á fólk áfram rétt á sjúkradagpeningum.
Sjúkratryggingar vegna tannlæknaþjónustu
Börn og unglingar fá ókeypis tannlæknaþjónustu fram að 19 ára aldri. Frá og með því ári sem fólk nær tvítugsaldri er það tryggt vegna tannlæknaþjónustu Trygging vegna tannlæknaþjónustu felur í sér að fólk þarf ekki að greiða fullt verð fyrir þjónustuna. Í tryggingunni felst tannverndargreiðsla og jafnframt er sett þak á hámarksgreiðslu vegna mikilla tannviðgerða. Allir fullorðnir einstaklingar eiga rétt á tannverndargreiðslunni sem er 300 sænskar krónur og er greidd út annað hvert ár. Þeir sem nota sjaldan þjónustu tannlækna geta átt rétt á tvöfaldri tannverndargreiðslu. Þetta á við einstaklinga sem eru á aldrinum 20 til 29 ára og 75 ára og eldri. Viðkomandi verður sjálfur að láta tannlækninn vita þegar hann ætlar að nýta tannverndargreiðsluna. Þak er jafnframt sett á greiðslur. Greiddur er hluti af þeim tannlæknakostnaði sem fer yfir 3.000 sænskar krónur. Greiðslur frá Tryggingastofnun fara beint til tannlæknisins. Gjaldskrá tannlækna er frjáls.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 18.06.2010