Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Kosningaréttur í Svíþjóð

    Kosningar til sveitar- og lénsstjórna

    Ríkisborgarar frá Norðurlöndunum og öðrum ESB/EES-ríkjum, 18 ára og eldri, geta kosið til sveitar- og lénsstjórna í Svíþjóð. Norskir og íslenskir ríkisborgarar geta kosið til sveitar- og lénsstjórna ef það hefur haft lögheimilii í Svíþjóð í samfleytt þrjú ár fyrir kosningar.


    Þingkosningar

    Eingöngu sænskir ríkisborgarar yfir átján ára aldri sem eru eða hafa einhvern tíma verið með lögheimili í Svíþjóð geta kosið til þings.  


    Evrópuþingið

    Allir ríkisborgarar frá ESB-ríkjum (ekki EES-ríkjum) sem eru átján ára eða eldri á kosningadaginn og búsettir í Svíþjóð geta kosið til Evrópuþings ef þeir kjósa ekki til sama þings í öðru ESB-ríki. 


    Kosningaréttur

    Kosningaréttur þinn ákvarðast út frá upplýsingum frá þjóðskrá Skatteverkets eins og þær birtast 30 dögum fyrir kosningar. Allir sem hafa kosningarétt fara sjálfkrafa á kjörskrá og fá kjörseðil sendan heim í pósti. Kjörskráin er listi yfir alla þá sem hafa kosningarétt.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 24.11.2009


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang