Svíþjóð
Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð
Spurningar og svör
- 1. Hvernig finn ég húsnæði í Svíþjóð?
- Kannaðu hjá viðkomandi sveitarfélagi hvort það hafi lausar leiguíbúðir. Ef þú ætlar að kaupa búsetaíbúð, einbýlishús eða raðhús geturðu skoðað auglýsingar í dagblöðum og á netinu eða haft beint samband við fasteignasala.
- 2. Get ég fengið húsaleigustyrk?
- Fólk með börn á framfæri á rétt á húsaleigustyrk, einnig barnlaust fólk á aldrinum 18 - 29 ára og lífeyrisþegar. Til þess að fá húsaleigustyrk er skilyrði að fólk sé búsett í landinu. Fólk getur fengið styrk til húsnæðiskostnaðar og vegna heimabúandi barna.
Barnafjölskyldur geta fengið styrk vegna heimabúandi barna þótt fjölskyldan búi í öðru landi. Þó er skilyrði að foreldrarnir starfi í Svíþjóð. Sérstakar reglur gilda ef fólk er í námi eða starfar við þróunarhjálp, og eins fyrir ríkisstarfsmenn, stjórnarerindreka og fjölskyldur þeirra. Nánari upplýsingar um húsaleigustyrki og umsóknir fást hjá Försäkringskassan - www.forsakringskassan.se.
- 3. Þarf ég að skrá mig inn í landið ef ég ætla aðeins að dvelja í 8 mánuði í Svíþjóð?
- Þú þarft þess ekki ef þú ert skráð/ur annars staðar á Norðurlöndum. En ef þú hyggst dvelja í heilt ár eða lengur í Svíþjóð þarftu að skrá þig inn í landið. Ef þú ætlar að vinna í Svíþjóð þarftu að skrá þig hjá Skatteverket (skattstofu). Þar færðu svokallaða samræmingartölu (samordningsnummer).
- 4. Hvað verður um kennitölu mína þegar ég flyt aftur frá Svíþjóð?
- Kennitalan er gerð óvirk um leið og þú skráir þig í öðru landi, en hún varðveitist og þess vegna fær enginn annar sömu kennitölu. Ef þú hefur unnið til lífeyrissparnaðar í Svíþjóð tengist hann kennitölu þinni.
- 5. Verð ég að tryggja bifreið mína?
- Samkvæmt lögum þarftu að hafa ábyrgðartryggingu frá þeim degi sem þú eignast bílinn. Ef þú hefur ekki ábyrgðartryggingu þarftu að greiða gjald til Trafikförsäkringsföreningen (Ábyrgðartryggingarfélagsins) frá þeim degi sem þú eignaðist bílinn. Lesið nánar á vef Trafikförsäkringsföreningen: www.tff.se.
- 6. Hvaða banka á ég að velja?
- Við getum ekki mælt með neinum bönkum umfram aðra en þú getur borið þá saman á vef Konsumenternas Bank- och Finansbyrå (www.konsumentbankbyran.se).
- 7. Hvenær er kosið í Svíþjóð?
- Kosið er á fjögurra ára fresti til þings, lénsstjórna og sveitarstjórna.
VinnaBörn og fjölskylda
Útgefandi:
Ved Stranden 18 1061 København K
Sími:
+45 33 96 02 00
Netfang