Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Lífeyrir

    Þeir sem starfa í Svíþjóð vinna sér inn sænskan lífeyrissparnað á hverju ári. Greiðslur í sænska lífeyrissjóði kallast pensionsavgifter. Einstaklingar greiða sinn hluta lífeyrisgjaldanna með sköttum en atvinnurekendur í formi atvinnurekendagjalda. Gjöldin nema samtals 18,5% af launum sem liggja til viðmiðunar lífeyris. 16% renna í almennan lífeyri en 2,5% í viðbótarlífeyri.

    Auk launatekna getur umönnun ungra barna, nám, herþjónusta og sjúkra- eða endurhæfingingarlífeyrir verið metin til lífeyrisréttinda. Eigir þú rétt á lífeyri frá fleiri en einu Norðurlandanna geturðu lesið nánar um skattgreiðslur á Nordisk E-Tax.


    Starfsaldur hefur áhrif á upphæð lífeyris

    Mögulegt er að fá greiddan sænskan lífeyri frá 61 árs aldri. Launþegar geta sjálfir ákveðið hvað þeir starfa lengi fram að 67 ára aldri. Það er hins vegar samkomulagsatriði milli launþegans og atvinnurekanda hvort sá fyrrnefndi starfar áfram eftir 67 ára aldur. Upphæð lífeyris hækkar með starfsaldrinum.


    Hækkun lífeyris vegna barna

    Foreldrar vinna sér inn aukin lífeyrisréttindi á fjórum fyrstu æviárum barna sinna, óháð því hvort þeir taka sér foreldraorlof. Ríkið sér um þessar greiðslur í lífeyrissjóði. Tekjulægri foreldrið hefur rétt á hærri lífeyrissparnaðaruppbót. Þó er hægt að færa lífeyrisréttindi vegna fyrstu æviára barnsins yfir á hitt foreldrið ef sérstaklega er sótt um það hjá Pensionsmyndigheten. Upphæð viðbótarlífeyris er miðuð við tekjur foreldra fyrir og eftir fæðingu barns. Pensionsmyndigheten notar þrjár mismunandi aðferðir til útreikningar og velur þá aðferð sem hentar hverjum og einum best.


    Sótt um lífeyri

    Lífeyrir berst ekki sjálfkrafa og því þarf alltaf að sækja um hann. Sótt er um lífeyri hjá Pensionsmyndigheten. Ef fólk er búsett í Svíþjóð nægir að senda inn umsókn 2-3 mánuðum áður en óskað er eftir að lífeyrisgreiðslur hefjist. Athugið að ekki er hægt að sækja um lífeyri aftur í tímann, heldur aðeins frá þeim degi sem sótt er um. Umsóknareyðublöð fyrir lífeyri fást hjá Pensionsmyndigheten.

    Ef fólk hyggst fara á eftirlaun getur það einnig sótt um lífeyrinn á netinu.
    En þá þarf það að vera orðið 60 ára og vera búsett í Svíþjóð. Til þess þarf einnig rafræn skilríki (e-legitimation). Rafræn skilríki geta einnig auðveldað samskipti við aðrar stofnanir, til dæmis Skatteverket og lyfjaverslanir. Hægt er að fá E-legitimation í bankanum sínum. Til þess þarf sænska kennitölu og viss lágmarksaldur. Með rafrænum skilríkjum er hægt að sinna ýmsum erindum á netinu,  til dæmis tilkynna veikindi og flutninga og panta lyf, svo eitthvað sé nefnt.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 18.06.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang