Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Kaup á vörum og þjónustu

    Afnotagjöld af sjónvarpi

    Allir sem eiga, leigja eða fá lánað sjónvarpstæki skulu greiða afnotagjöld samkvæmt sænskum lögum. Fólk er sjálft ábyrgt fyrir að tilkynna sjónvarpstækið hjá Radiotjänst.


    Farsímar, almennir talsímar og breiðband

    Það getur reynst torvelt að fá áskrift að síma ef fólk er ekki skráð í Svíþjóð. Hafið samband við símafyrirtækið sem þið hyggist skipta við og kannið reglur þess fyrir viðskiptavini sem eru ekki á þjóðskrá í Svíþjóð.

    Ef langt er síðan fólk hefur verið á þjóðskrá í Svíþjóð krefjast mörg fyrirtæki þess að það framvísi launaseðlum eða öðru sem staðfestir tekjur.  Einnig er mögulegt að kaupa fyrirframgreitt símakort í farsíma. Almennt er ekki krafist sænskrar kennitölu við kaup á talkortum.


    Heimasímar, stafrænt sjónvarp og breiðband

    Í nýju leiguhúsnæði er oft hægt að fá bæði heimasíma, stafrænt sjónvarp og breiðband gegnum netið. Þjónustufyrirtækin eru mismunandi eftir landshlutum. Á vef Konsumentverket er hægt að finna samanburð á verðskrám á fjarskiptamarkaði. Á Cint.se má einnig finna verðsamanburð auk þess sem mögulegt er að spjalla beint við aðra neytendur.


    Orkuveitur og raforkusalar

    Í Svíþjóð er frjálst val á milli raforkusala en ekki orkudreifingaraðila. Orkudreifingaraðilar krefjast alltaf gjalds fyrir dreifingu og flutning orku og viðskiptavinurinn getur ekki haft áhrif á þá upphæð. Hins vegar getur hann valið á milli raforkusala. Ef ekkert er gefið upp velur dreifingaraðilinn þann raforkusala sem skipt er við. Áður en raforkusali verður fyrir valinu er ráðlegt að kynna sér verðsamanburð á vef Konsumentverket um orkumál. Eins er hægt að gera verðsamanburð á Cint.se. 

    Viðskiptavinurinn gerir þjónustusamning við orkudreifingarfyrirtæki. Við brottflutning er mikilvægt að afskrá sig hjá fyrirtækinu svo fólki lendi ekki í því að verða greiðsluskyld fyrir orkunotkun annarra.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 18.06.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang