Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Upplýsingar fyrir fatlaða

    Fyrir flutning er góð hugmynd að hafa samband við þann aðila sem sér um málefni fatlaðra í sveitarfélaginu eða hverfisnefndinni í aðflutningslandinu. Þar fást upplýsingar um hvaða aðstoð stendur til boða.  

    Aðstoðin er í samræmi við lög um félagslega þjónustu -  Socialtjänstlagen, og lög um heilsugæslu og læknisþjónustu - Hälso- och SjukvårdsLagen. Lögin ná til allra sem eru aðstoðar þurfi. Í lögum um félagslega þjónustu er kveðið á um hvernig læknaþjónustu, meðferð, sjúkraþjálfun, endurhæfingu og hjálpartækjaþjónustu skuli háttað.

    Ef fötlunin er mikil gilda einnig lög um stuðning og þjónustu vegna ákveðinna tegunda fötlunar - Lag om Stöd och Service till vissa funktionshindrade. 
     

    Försäkringskassan ákvarðar og greiðir meðal annars bætur til fatlaðra, umönnunar- og bifreiðastyrki og niðurgreiðir aðstoðarfólk fyrir fatlaða. Þá er hægt að sækja um hjálpartæki til vinnu, styrki til starfsendurhæfingar, sjúkradagpeninga og styrki vegna húsnæðiskostnaðar. Eins er hægt að fá aðstoð og leiðbeiningr hjá Handikappades riksförbund.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 18.06.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang