Mismunandi reglur gilda um innflutning á köttum og hundum til Svíþjóðar eftir löndum. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um kröfur sem gerðar eru við innflutning á dýrum frá Norðurlöndunum til Svíþjóðar.
Hundar og kettir frá Finnlandi, Danmörku og Íslandi
Áður en ferðast er með kött eða hund til Svíþjóðar verður dýrið að vera merkt með microchip eða tattú og bólusett gegn hundæði.
Blóðprufa skal hafa verið tekin til að mæla mótefni gegn hundaæði. Prófið má gera í fyrsta lagi 120 dögum eftir síðustu bólusetningu gegn hundaæði og í síðasta lagi síðasta degi áður en bólusetning fellur úr gildi. Viðurkennd rannsóknastofa skal greina niðurstöður.
Dýrið þarf að vera bandormhreinsað af dýralækni innan við tíu dögum fyrir ferðalag. Þetta á ekki við um dýr sem flutt eru frá Finnlandi, þar með talið Álandseyjum.
Ef hundurinn eða kötturinn eru flutt með flugi sem fragt, skal dýralæknisskoðun fara fram innan við 24 tímum fyrir ferð. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu landbúnaðarráðuneytisins.
Inn- og útflutning á dýrum innan ESB verður alltaf að tilkynna til Tollstjóra. Þegar komið er til landsins er farið í „rauða hliðið" og tilkynnt að viðkomandi ferðist með dýr. Tollurinn ákveður því næst hvort ástæða sé til að skoða dýrið og leyfið. Ekki þarf að tilkynna innflutning á hundum og köttum fyrirfram, tilkynningarskyldan gildir eingöngu við landamærin. Á tollstöðum án starfsmanna eiga að vera til staðar upplýsingar toll-upplýsingar. Ef það er ekki skal hringja til Tollstjóra Rikssambandscentral í síma 0980-84550.
Landbúnaðarráðuneytið getur í sérstökum tilvikum veitt undanþágu vegna innflutnings frá landi þar sem ekki eru dæmi um hundaæði, sé dýrið yngra en þriggja mánaða.
Nánari upplýsingar eru að fá hjá landbúnaðarráðuneytinu.
Fjögurra vikna leyfi vegna ferða milli Svíþjóðar og Danmerkur
Einstaklingur sem ferðast reglulega milli Svíþjóðar og Danmerkur getur nýtt svokallað fjögurra vikna leyfi ásamt dýravegabréfinu. Slík leyfi eru gefin út fyrir dýr sem eiga heima í Svíþjóð eða Danmörku, sem fylgja eigendum sínum milli þessara landa. Eyðublöð vegna þessara leyfa fást hjá landbúnaðarráðuneytinu og hjá dýralæknum.
Leyfin eru gefin út af viðurkenndum dýralæknum í Svíþjóð og Danmörku. Dýralæknir hreinsar einnig bandorm úr dýrum. Þegar fjögurra vikna leyfi er gefið út í fyrsta sinn fyrir dýr sem eingöngu hefur verið í Svíþjóð, Noregi eða Finnlandi þarf ekki að bandormshreinsa dýrið, vegna þess að enginn bandormur er í þessum löndum.
Nánari upplýsingar hjá landbúnaðarráðuneytinu.
Þegar ferðast er með danskan hund eða kött til eða frá Bornholm
Sérstakar reglur gilda fyrir Dani sem ferðast með hund eða kött í gegnum Svíþjóð í einkabifreið, vörubifreið, í rútu eða lest, milli Sjálands og Bornholm. Tilkynningu um innflutning er þá hægt að fylla út á Netinu. Nánari upplýsingar um sérstakar reglur hjá landbúnaðarráðuneytinu.
Innflutningur á hundum og köttum frá Noregi
Þegar hundur eða köttur er fluttur inn frá Noregi er ekki gerð krafa um dýravegabréf né heldur sérstakrar meðhöndlunar á dýrinu. Ekki er heldur þörf á að tilkynna innflutninginn til Tollsins. Nánari upplýsingar um bólusetningu, eftirlit, bandormshreinsun, leyfi vegna dýra sem eru undir þriggja mánaða gömul og ferðir til Bornholm, eru að finna á vef landbúnaðarráðuneytisins.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 18.06.2010