Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Ef fólk hyggst flytja frá Svíþjóð

    Ef fólk flyst til útlanda og hyggst dvelja þar í a.m.k. eitt ár þarf það að skrá sig úr landi í Svíþjóð. Það tilkynnir sjálft flutning hjá Skatteverket í Svíþjóð og í aðflutningslandinu. Tilkynna þarf flutning til útlanda eigi síðar en viku fyrir brottför.

    Eyðublaðið er hægt að finna á heimasíðu Skatteverket bæði til á sænsku og ensku. Hafi fólk upphaflega ætlað að staldra stutt við í útlöndum en síðan ákveðið að lengja dvölina þarf að tilkynna brottflutninginn um leið og ákvörðunin hefur verið tekin.  


    Flutningar á milli Norðurlandanna

    Þegar flust er til annarra Norðurlanda eru það reglurnar í aðflutningslandinu sem kveða á um hvar fólk skráir sig í landið. Þó þarf að tilkynna flutningana hjá Skatteverket (Skattstofu) eigi síðar en viku fyrir brottför. Fólk hverfur ekki af þjóðskrá fyrr en aðflutningslandið hefur staðfest að það sé komið á þjóðskrá þar í landi.  


    Annað sem vert er að hafa í huga:

    Tilkynnið breytt heimilisfang hjá Adressändring.


    Afnotagjöld af sjónvarpi

    Hafið samband við Radiotjänst og afskráið sjónvarpstækið skriflega. Það er ekki nóg að senda flutningsvottorð til Skatteverket. 


    Kaup á raforku

    Munið eftir að afskrá ykkur hjá raforkusalanum svo þið lendið ekki í því að greiða fyrir orkunotkun annarra.  


    Aðrar áskriftir

    Gleymið heldur ekki að segja upp áskrift,  til dæmis að almennum talsíma, breiðbandi og dagblöðum.


    Opinber gjöld af farartækjum

    Bilregistret sendir ekki kröfur vegna vangoldinna opinberra gjalda af farartækjum til útlanda. Þegar flust er úr landi þarf því að gefa upp sænskt heimilisfang hjá Bilregistret þangað sem reikningar eru sendir. Fram þarf að koma lögheimili eigandans, eða annað heimilisfang í Svíþjóð ef viðkomandi er ekki á þjóðskrá þar. Ef fólk hefur ekki gefið upp heimilisfang í Svíþjóð eru skattarnir sendir til innheimtu hjá sýslumannsembættinu. Þá er fólki greitt að greiða grunngjöld sem nema 500 SEK. 


    Standið vörð um kosningaréttinn

    Sænskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kosningadegi eru sjálfkrafa skráðir á kjörskrá. Þeir haldast á kjörskrá þar til 10 ár eru liðin frá því að þeir fluttu úr landi. Tíu ára tímabilið er hægt að endurnýja ef fólk tilkynnir að það óski eftir að vera áfram á kjörskrá, eða gefur upp nýtt heimilisfang erlendis. Tilkynna þarf breytt heimilisfang erlendis hjá Skatteverket á eyðublaðinu SKV 7742.


    Ríkisfang

    Fólk missir ekki sænskt ríkisfang sitt þótt það flytji úr landi og hverfi af þjóðskrá í Svíþjóð. 


    Annað

    Hafðu einnig samband við banka og tryggingafélög áður en þú flytur. Það getur einnig verið gott að fá vottorð frá skólum barna og öðrum menntastofnunum, fæðingarvottorð og heilsufarsbók með upplýsingum um bólusetningar.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 21.06.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang