Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Húsnæði

    Kaupleiguíbúðir (bostadsrätt)

    Þegar fólk kaupir kaupleiguíbúð eignast það húsnæðið en þó með vissum skilyrðum. Það er til dæmis ekki leyfilegt að leigja íbúðina út án samþykkis búsetafélagsins. Búsetafélagið á fasteignina og rekur hana samkvæmt búsetalögum. Í félaginu eru allir íbúar fasteignarinnar, en reglur slíkra félaga geta verið mismunandi.

     

    Nánari upplýsingar um kaup á kaupleiguíbúð á vef sænsku neytendastofunnar, Konsumentverket. Upplýsingar um fjármögnun má finna á vef Konsumenternas Bank- och finansbyrå.



    Leiguhúsnæði

    Leiguhúsnæði er ýmist í eigu einkaaðila eða sveitarfélaga og er leigt út í mánuð í senn. Það getur reynst erfitt að finna leiguhúsnæði í stærri borgum og því eru framleigusamningar algengir. Framleiga þýðir að íbúarnir hafa ekki umráðarétt yfir íbúðinni vegna þess að þeir framleigja af leigjanda hennar en ekki af eiganda hennar. Framleigt húsnæði er yfirleitt dýrara en leiguhúsnæði og framleigusamningar eru tímabundnir. Gætið þess að gera alltaf leigusamning áður en þið flytjið í leiguhúsnæði. Uppsagnarfrestur í Svíþjóð er einn mánuður ef ekki er samið um annað. Í Svíþjóð fylgir iðulega ísskápur, frystir, sturta og/eða baðker og aðgangur að þvottahúsi.


    Spyrjist fyrir hjá viðkomandi sveitarfélagi hvort það reki húsnæðismiðlun. Á heimsíðu sambands sænskra sveitarfélaga má finna vefslóðir sveitarfélaganna.
    Þá er hægt að finna íbúðir í sumum dagblöðum. Einnig er hægt að leita á netinu, spyrjast fyrir hjá vinum og kunningjum, fara á bókasöfn eða í háskólana og aðrar æðri menntastofnanir en þar eru yfirleitt tilkynningatöflur með framleiguauglýsingum.



    Stúdentagarðar

    Í mörgum námsborgum er húsnæði á stúdentagörðum í boði. Til þess að fá inni þar þarf að sýna fram á eðlilega námsframvindu. Sjá nánar í kaflanum „Að stunda nám í Svíþjóð“.

     


    Einbýlishús/frístundahús

    Norðurlandabúar mega kaupa fasteignir í Svíþjóð. Eins geta þeir átt lögheimili í frístundahúsi og haft þar fasta búsetu. Kannið hjá viðkomandi sveitarfélagi hvaða opinbera þjónusta er í boði fyrir fólk sem býr í frístundahúsum. Sjá nánar um kaup á einbýlishúsum og frístundahúsum á vef Konsumentverket. Lesið nánar um fjármögnun á vef Konsumenternas Bank- och finansbyrå.

     

    Óháð því hvers konar húsnæði þú leitar að þá er góð hugmynd að heimsækja vefsíðuna Om Boende. Bokverket og Konsumentverket sjá um síðuna og á henni má finna ráð, upplýsingar og vefslóðir sem auðvelda húsnæðisleitina.

     


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 18.06.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang