Dagvistarstofnanir
Barn þitt á rétt á dagvistun ef þú ert í vinnu, námi, atvinnuleit eða ef þú gætir yngri systkina þeirra heima fyrir. Í Svíþjóð eru dagvistarstofnanir yfirleitt reknar af sveitarfélögunum eða hverfisnefndum (stadsdelsnämnderna) í stærri borgum. Fólk þarf að vera skráð í viðkomandi sveitarfélagi eða geta sýnt fram á að það hyggist setjast þar að, til dæmis með framvísun leigusamnings, þegar það sækir um dagvistun. Reglurnar eru þó mismunandi eftir sveitarfélögum og því borgar sig að hafa samband við viðkomandi sveitarfélag til að kynna sér reglur sem þar gilda. Á heimasíðu sambands sænskra sveitarfélaga má finna vefslóðir sveitarfélaganna.
Afgreiðsla umsókna um dagvistun tekur í mesta lagi fjóra mánuði. Auk leikskólanna starfa dagmömmur heima fyrir á vegum sveitarfélagsins. Þær/þeir sjá um dagvistun barnanna en auk þess reka sveitarfélögin fjölskylduleikskóla (familjedaghem) og s.k. fjölskyldukerfi (flerfamiljssystem) þar sem foreldrarnir sjálfir skiptast á að gæta barnanna. Fáið nánari upplýsingar um dagvistunarframboð hjá sveitarfélaginu. Börn þurfa að vera orðin 12 mánaða áður en þau fá dagvistarrými eða greiðslu frá sveitarfélaginu fyrir dagvistun í heimahúsum.
Grunnskólar
Í sænskum grunnskólum eru níu bekkir og skiptist skólaárið í haustönn og vorönn. Í Svíþjóð er skólaskylda og skólinn er ókeypis fyrir börn á aldrinum 6 - 16 ára. Upphaf skólagöngu er sveigjanlegt og því geta börnin verið ýmist 6, 7 eða 8 ára þegar þau byrja í skóla. Auk skóla sem reknir eru af sveitarfélögum eru starfandi einkaskólar (sem þó þurfa samþykki skólayfirvalda, Skolverket) og eru þeir opnir öllum.
Einkunnir eru gefnar í lok haust- og vorannar í 8. bekk og í lok haustannar í 9. bekk. Lokaeinkunnir eru gefnar þegar skólaskyldu lýkur við lok vorannar á 16. aldursári barnsins. Nánari upplýsingar veitir Skolverket (Skoleverket).
Framhaldsskólar
Framhaldsskólar (gymnasieskolan) eru ókeypis valkostur fyrir ungt fólk á aldrinum 16 - 20 ára sem lokið hefur grunnskóla. Skólastarfið í framhaldsskólum fylgir námsskrá, námsáætlunum og einstaklingsbundnum áætlunum. Framhaldsskólarnir eru allir til þriggja ára og þar er boðið upp á mismunandi námsbrautir, en sumar þeirra eru eingöngu í boði í fáum landshlutum. Nánari upplýsingar veitir Skolverket (Skoleverket).
Norræni framhaldsskólasamningurinn kveður á um að fólk geti lokið framhaldsskólanámi í öðru norrænu landi á sömu kjörum og í heimalandi sínu, þeim og foreldrum þeirra að kostnaðarlausu. Samningurinn er á vef Norrænu ráðherranefndarinnar í kaflanum Norrænir samningar, sáttmálar og reglugerðir (Norden.org).
Almennar Kröfur um þekkingu og tungumálakunnáttu
Þegar nemandi frá öðru Norðurlandanna hefur skólanám í Svíþjóð metur sænski skólinn hvort þekking nemandans í sænskri tungu sé nægileg til þess að hann fái notið kennslunnar sem skyldi. Ef skorta þykir á þekkingu nemandans er honum boðin kennsla í sænsku sem erlendu tungumáli. Í framhaldsskólum er fyrri menntun og tungumálakunnátta nemandans borin saman við kröfur sem gerðar á samsvarandi skólastigi í sænskum framhaldsskóla. Þess er krafist að framhaldsskólanemar skilji það mikla sænsku að þeir geti uppfyllt aðgangskröfur í stærðfræði og ensku.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 18.06.2010