Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Ökutæki

    Innflutningur á einkabílum eða öðrum ökutækjum

    Ef einstaklingur flytur með sér einkabifreið eða annað ökutæki frá öðru ESB ríki kallast það innflutningur. Í þeim tilvikum þarf að sækja um upprunavottorð, senda upplýsingar til og fá samþykki hjá Transportstyrelsen, áður en hægt er að skoða ökutækið fyrir skráningu hjá Bilprovningen eða hjá Svensk Maskinprovning AB. Undanþágur eru gefnar fyrir ný ökutæki sem skráðir bifreiðainnflytjendur flytja inn (þar með taldir umboðsmenn) og fyrir ný ökutæki sem smíðuð eru af framleiðendum í Svíþjóð. Sé einstaklingur að flytja til Svíþjóðar frá Íslandi eða Noregi, er um að ræða innflutning frá ríkjum utan ESB og þá þarf að greiða skatt af ökutækinu. Að öðru leiti gilda sömu reglur um ökutækið og við innflutning frá ESB ríki. Nánari upplýsingar á vef Transportstyrelsen.

    Innflutningsferlið

    Ferli innflutnings á ökutækjum er eftirfarandi, frá því að tækið kemur að sænsku landamærunum og þar til að það er tilbúið til notkunar.
    • Ef ökutækið er flutt inn frá landi sem ekki á aðild að ESB, skal greiða toll af því hjá Tullverket.
    • Ef um er að ræða nýtt ökutæki frá ESB ríki, skal tilkynna innflutninginn til Skattstjórans í Ludvika. Virðisaukaskattur er greiddur af innkaupsverði.
    • Tryggið ökutækið vegna tímabundinnar skráningar hjá tryggingafélagi.
    • Sækja skal um upprunavottorð hjá Bifreiðaeftirlitinu.
    • Panta skal tíma í skráningarskoðun og tæknieftirlit hjá Bilprovningen eða Svensk Maskinprovning
    • Ef þörf er á reglubundinni skoðun ökutækis, er hægt að fá skoðun hjá Bifreiðaskoðuninni í beinu framhaldi af skráningarskoðun.
    • Eftir skráningarskoðun og tæknieftirlit er gefið út skráningarnúmer fyrir ökutækið. Eigandinn fær skráningarvottorð og númeraplötur send heim.
    • Þegar skráningarvottorð og númeraplötur eru tilbúin, þarf að aka ökutækinu til Transportstyrelsen. Athuga þarf hvort ökutækið sé tryggingaskylt. Hafa ber í huga að reglur eru ólíkar vegna innflutnings frá ESB ríki annars vegar og innflutnings frá Noregi og Íslandi hins vegar. Nánari upplýsingar eru að finna á vef Transportstyrelsen


    Tímabundin skráning

    Þegar ökutæki er flutt inn til Svíþjóðar er leyfilegt að nota það tímabundið í eina viku, sé það með gilda skráningu og tryggingar í öðru landi. Ef ekki á að nota ökutækið lengur en eina viku, er hægt að sækja um „Vottorð um tímabundna notkun“ þegar tími er pantaður fyrir skráningarskoðun. Þetta felur í sér að leyfilegt er að aka stystu leið til og frá skráningarskoðun, án þess að sækja þurfi um tímabundna skráningu. Ökutækið verður þó alltaf að vera tryggt (gildir ekki um tengivagna). Nánari upplýsingar um tímabundna skráningu á Transportstyrelsen. Ef óskað er eftir enn frekari upplýsingum, er ráðlagt að skoða vefsíðu Samgöngueftirlitsins um innflutning á ökutækjum Transportstyrelsen.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 18.06.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang