Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Hvernig stofna ég bankareikning?

    Þú þarft að hafa sænska kennitölu eða samræmingartölu og vera búsett/ur í Svíþjóð til þess að stofna sænskan bankareikning. Kennitala og samræmingartala fást hjá skattayfirvöldum. Lesið nánar í kaflanum „Þjóðskrá í Svíþjóð“.

    Þá þarftu að framvísa gildum skilríkjum; ESB-vegabréfi, ökuskírteini eða nafnskírteini. Stundum fer bankinn fram á staðfestingu frá banka þínum í brottflutningslandinu áður en stofnaður er reikningur í þínu nafni í sænska bankanum. Athugaðu þetta nánar hjá bankanum þar sem þú hyggst stofna reikning.

    Upplýsingar og leiðbeiningar um banka í Svíþjóð má finna á heimasíðu Konsumentbankbyrån.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 18.06.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang