Meðganga
Í Svíþjóð eiga allar barnshafandi konur rétt á ókeypis læknisskoðun, en frjálst er hvort kosið er að notfæra sér það. Fyrsta skoðun er yfirleitt í 9. - 13. viku meðgöngu. Viðkomandi velur sjálf mæðraskoðunarstöð og leyfilegt er að skifta um skoðunarstöð á meðan á meðgöngu stendur.
Fæðing
Oft er ljósmæðramóttaka í samstarfi við fæðingardeild viðkomandi, en þó ekki skylt að fæða þar. Sum sveitarfélög bjóða fjárhagsstyrk til heimafæðingar að uppfylltum vissum skilyrðum. Hafðu samband við það sveitarfélag sem þú ætlar að fæða í til þess að fræðast meira um heimafæðingar.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 02.07.2010