Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Störf á landamærasvæðum

    Ef þú býrð í einu Norðurlandanna en starfar í öðru gildar sérstakar reglur um skatta og sjúkratryggingu.  


    Skattar og almannatryggingar

    Pendlarar sem eru skattskyldir í Svíþjóð greiða skatta þar í landi af launum og öðrum tekjum af vinnu í landamærahéruðum í Noregi og Finnlandi.

    Til að fá skattkort hjá sveitarfélagi þar sem starfa er, þarf að hafa samband við skattayfirvöld. Skilað er bráðabirgðaframtali í heimabyggð viðkomandi og greiddur er sérstakan frádreginn A-skatt til skattayfirvalda í búsetulandinu. Pendlarar eiga yfirleitt að vera tryggðir í landinu sem þeir starfa í. Það þýðir að tekjur sem pendlari sem er búsettur í Svíþjóð vinnur sér inn í landamærahéraði í Noregi eða Finnandi teljast ekki til tekna við útreikning lífeyris í Svíþjóð.

    Tryggingagjöld af launum og tryggingagjöld atvinnurekanda eru því greidd í landinu þar sem starfað er, ekki í Svíþjóð. Ef einstaklingar hins vegar starfa bæði í landamærahéraði, í annað hvort Finnlandi eða Noregi, OG Svíþjóð geta reglurnar verið öðru vísi. Þá þarf fólk yfirleitt að greiða tryggingargjöld og atvinnurekendagjöld í Svíþjóð. Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Försäkringskassan 


    Starfsfólk sem sent er til starfa fjarri heimahögum

    Ef sænskur atvinnurekandi sendir starfsmann sinn tímabundið þ.e. í eitt ár með hugsanlegri framlengingu í ár í viðbót, til starfa í norrænu sveitarfélagi hinum megin við landamærin, er hægt að sækja um að vera áfram tryggður í Svíþjóð. Þá er eyðublað E 101 útfyllt.  


    Afskráning

    Hafðu alltaf samband við tryggingastofnun í þínu bæjarfélagi til þess að fá upplýsingar um hvernig þú skráir/afskráir þig í hvoru landi fyrir sig. Fólk getur aðeins verið tryggt í einu landi í senn.  


    Bætur og þess háttar

    Meginreglan er sú að fólk sem er tryggt í  til dæmis Svíþjóð, fær greiddar bætur og þess háttar samkvæmt reglum þar í landi.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 02.07.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang