Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Atvinnuleyfi og dvalarleyfi

    Norrænir ríkisborgarar geta dvalið í Svíþjóð í allt að heilt ár án dvalarleyfis eða skráningar í þjóðskrá. Ef þeir hyggjast dvelja þar lengur en eitt ár verða þeir að skrá sig inn í landið. Sjá nánar í kaflanum "Þjóðskrá".

    Ríkisborgarar frá ESB/EES-ríkjum sem eru launþegar, sjálfstætt starfandi, námsmenn eða sem geta framfleytt sér á annan hátt hafa rétt á að dvelja í Svíþjóð. Með dvalarrétti er átt við að ríkisborgarar frá ESB/EES-ríkjum og fjölskyldur þeirra geti dvalið í Svíþjóð í meira en þrjá mánuði án dvalarleyfis. Einstaklingar sem hafa rétt á að dvelja í landinu geta skráð sig hjá Migrationsverket í síðasta lagi þremur mánuðum eftir komuna til landsins. Ríkisborgarar frá ESB/EES-ríkjunum sem starfa í Svíþjóð en hafa lögheimili í öðru ESB/EES-ríki, sem þeir heimsækja a.m.k. vikulega þurfa ekki að skrá sig í Svíþjóð.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 02.07.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang