Noregur
Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Noregi
Spurningar og svör
- 11. Ég ætla að flytja til Noregs til að vinna þar. Hvað gerist ef ég veikist?
- Ef norrænn ríkisborgari hyggst flytja á milli Norðurlandanna í meira en hálft ár þarf hann að skrá lögheimili sitt í aðflutningslandinu. Við skráningu í norska þjóðskrá fær fólk norska kennitölu og nýtur sjálfkrafa tryggingarverndar í almannatryggingum. Tryggingastofnun greiðir stóran hluta lyfjameðferðar og eins sjúkradagpeninga ef þú fullnægir vissum skilyrðum. Nánari upplýsingar um réttindi á almannatryggingum á vef NAV (www.nav.no).
- 12. Þarf ég að greiða fyrir tryggingu í norskum almannatryggingum?
- Ef tekjur þínar eru lægri en 29.600 NOK þarftu ekki að greiða tryggingagjald í almannatryggingum. Þá eru tryggingagjaldið greitt úr ríkissjóði og rennur féð til skrifstofu Tryggingastofnunar (NAV kontoret) (www.nav.no) næst heimili þínu. Lífeyrisþegar sem fá aðeins lágmarkslífeyri þurfa heldur ekki að greiða tryggingagjald í almannatryggingum.
- 13. Get ég kosið í Noregi ef ég er norrænn ríkisborgari?
- Norrænir ríkisborgarar geta kosið til fylkis- og sveitarstjórna í Noregi ef þeir eiga lögheimili í Noregi 31. maí s.l. og hafa náð 18 ára aldri á því ári sem kosningar fara fram. Það eru hins vegar aðeins norskir ríkisborgarar sem geta kosið til Stórþingsins.
- 14. Fær barnið mitt norskt ríkisfang ef það fæðist í Noregi?
- Þó að barn fæðist í Noregi fær það ekki sjálfkrafa norskt ríkisfang. En ef barnið er fætt síðar en 31. ágúst 2006 og annað foreldranna er norskt, þá fær barnið sjálfkrafa norskt ríkisfang óháð því hvar það kemur í heiminn.
- 15. Ef ég er norskur ríkisborgari get ég þá líka haft annað ríkisfang?
- Almenn regla er að norskir ríkisborgarar geti ekki haft tvöfalt ríkisfang en þó eru undantekningar í lögunum. Ef þú hefur til dæmis fæðst með tvöfalt ríkisfang, vegna þess að móðir þín er norsk en faðir þinn útlendingur. Lesið nánar um lögin á vefsetri Útlendingastofu (www.udi.no).
- 16. Ég er ellilífeyrisþegi og hyggst flytja frá Noregi til annars norræns lands. Get ég flutt lífeyrinn með mér?
- Það er almenn regla að þú getir fengið norskan lífeyri þinn útgreiddan þegar þú flyst til annars Norðurlandanna. Fáðu nánari leiðbeiningar og upplýsingar á næstu skrifstofu NAV áður en þú flytur úr landi.
- 17. Ég er Svíi en hef áður búið í 8 ár í Noregi. Á ég rétt á lífeyri frá Noregi og hvernig ber ég mig þá að því að fá hann?
- Þú getur sótt um hluta lífeyris frá Noregi fyrir þann árafjölda sem þú bjóst og starfaðir þar í landi. Fáðu umsóknareyðublöð og nánari leiðbeiningar á næstu skrifstofu sænsku tryggingastofnunarinnar (Försäkringskassa). Gættu þess að gera það með góðum fyrirvara því það tekur nokkurn tíma að afgreiða slíkar umsóknir.
- 18. Þarf ég að hafa dýravegabréfið meðferðis þegar ég ferðast með hundinn minn frá Svíþjóð til Noregs?
- Nei, það þarftu ekki að gera. Dýr sem dvelja löglega í Svíþjóð er leyfilegt að taka með sér til Noregs, líka þegar um búferlaflutninga er að ræða.
- 19. Hverjar eru reglurnar ef ég tek hunda með mér frá Danmörku til þess að selja þá í Noregi?
- Innflutningur á hundum og köttum í atvinnuskyni er háður næstum sömu skilyrðum og einkainnflutningur. En þegar um innflutning í atvinnuskyni er að ræða, þurfa dýrin að koma frá skráðu fyrirtæki. Í vegabréfi/heilbrigðisvottorði þarf einnig að vera staðfest að löggildur dýralæknir hafi framkvæmt læknisskoðun á dýrinu sem leitt hafi í ljós að dýrið sé heilbrigt og þoli flutningana á áfangastað. Nánari upplýsingar á vef Matvælaeftirlitsins (www.mattilsynet.no).
- 20. Hvenær gengur trygging mín í almannatryggingum úr gildi?
- Ef þú starfar eða dvelst erlendis getur það haft í för með sér að trygging þín í almannatryggingum gangi úr gildi. Ef þú vinnur tímabundið í útlöndum (allt að 12 mánuði) og færð laun hjá norskum atvinnurekenda heldur þú tryggingu þinni í almannatryggingum. En trygging þín hjá almannatryggingum gengur úr gildi ef þú hyggst starfa erlendis lengur en í 12 mánuði eða hjá erlendum atvinnurekanda.
Börn og fjölskylda
Útgefandi:
Ved Stranden 18 1061 København K
Sími:
+45 33 96 02 00
Netfang