Áunninn lífeyrisréttur í Noregi
Almenn regla er að þú eigir rétt á grunnlífeyri frá Noregi þegar þú hefur búið í að minnsta kosti 3 ár í Noregi (þ.e. á tryggingatímabili frá 16 ára aldri að ellilífeyrisaldri).
Ef þú hefur starfað í Noregi hefurðu einnig áunnið þér rétt á tekjutryggingu eða lífeyri
Ellilífeyrir
Þegar fólk hefur náð 67 ára aldri öðlast það rétt á ellilífeyri úr norskum almannatryggingum. Þá segir meginreglan að fólk skuli hafa búið í Noregi í að minnsta kosti 3 ár eftir að það náði 16 ára aldri.
Ellilífeyrir skiptist í grunnlífeyri og tekjutryggingu (tilleggspensjon). Hafi fólk ekki unnið til tekjutryggingar eða ef hún er lægri en uppbót á lífeyri (særtillegg), fær það uppbót á lífeyri. Fullur grunnlífeyrir ásamt uppbót á lífeyri samsvara lágmarkslífeyri.
Nánari upplýsingar um hvernig sótt er um ellilífeyri og fjárhæðir eru að finna hjá Vinnu- og tryggingarmálastofnun. Ef einstaklingar flytja á milli Norðurlandanna eða EES-ríkja geta þeir fengið áfram greiddan lífeyri frá yfirvöldum í því landi sem réttur til lífeyris var áunninn. Þetta á einnig við um Færeyjar og Grænland. Lífeyrir er greiddur samkvæmt reglum í því landi þar sem til lífeyris var unnið. Sérstakar reglur eiga þó við um flutninga milli Danmerkur, Færeyja og Grænlands.
Hvernig er sótt um lífeyri frá hinum Norðurlöndunum?
Ef þú býrð á Norðurlöndum og veist með vissu eða heldur að þú eigir rétt á lífeyri frá öðru norrænu ríki, þarftu sjálf/ur að sækja um ellilífeyrinn. Þá hefurðu samband við næstu skrifstofu tryggingastofnunar í búsetulandi þínu. Búir þú í Noregi hefurðu samband við næstu skrifstofu NAV til þess að sækja um ellilífeyri frá öðru Norðurlandanna. Þú þarft að gera það með góðum fyrirvara því afgreiðsla umsóknar um lífeyri getur tekið einhvern tíma.
Sköttun á lífeyri frá öðrum Norðurlöndum
Ef þú býrð í Noregi en færð lífeyri frá öðru Norðurlandanna, eða ef þú býrð annars staðar á Norðurlöndunum og færð lífeyri frá Noregi, geturðu kannað skattareglur hjá Nordisk e-Tax.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 05.07.2010