Norrænir ríkisborgarar þurfa hvorki atvinnu- né dvalarleyfi til þess að búa og/eða starfa annars staðar á Norðurlöndunum.
Ríkisborgurum frá EES/EFTA-ríkjum er frjálst að flytja til Noregs og hefja þegar störf. Þú getur dvalið og starfað þar í allt að þrjá mánuði án sérstaks leyfis. Ef þú ert í atvinnuleit er þér heimilt að dvelja í hálft ár í landinu án sérstaks leyfis.
Ef þú ert launþegi frá nýju aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.e.: Póllandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Slóvakíu, Slóveníu, Búlgaríu eða Rúmeníu, gilda sérstakar aðlögunarreglur. Þú getur dvalist í Noregi í 3 mánuði, eða 6 mánuði ef þú ert í atvinnuleit. Þú getur hins vegar ekki hafið störf fyrr en þú hefur fengið til þess leyfi og það eru gerðar strangari kröfur til ráðningarkjara en ella. Aðrar reglur sem fjalla ekki um kjör launþega eru þær sömu fyrir alla þegna frá ESB/EES/EFTA-ríkjum, einnig þá sem fyrrnefndar aðlögunarreglur ná til. Sjá nánari upplýsingar á vef Útlendingastofu.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 05.07.2010