Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Menntakerfið

    Framhaldsmenntun í Finnlandi

    Framhaldsmenntun veita 21 ríkisreknir háskólar og 30 tækniskólar. Tækniskólarnir eru yfirleitt sjálfstæðar stofnanir í einkaeigu og reknir sem hlutafélög.  Kennt er á finnsku, sænsku og ensku.  


    Tækniskólar

    Tækniskólar veita ýmsa menntun sem tengist atvinnulífi en námsfólk sem þar hefur nám þarf að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu lokaprófi úr iðnnámi. 

    Yfirleitt er sótt um á vorin og mat á umsóknum byggir bæði á sameiginlegu umsóknarferli allra stofnana og inntökuprófi.  Kennsla í tækniskólum er að mestu leyti ókeypis.  Nánari upplýsingar um umsóknaferli er að finna á www.amkhaku.fi

    Í flestum tækniskólum í Finnlandi er kennt á finnsku en einnig eru til tækniskólar þar sem námið fer fram á sænsku.   Þá bjóða margir tækniskólar upp á námskeið þar sem kennt er á ensku. 

    Grunnnám í tækniskólum tekur um það bil 3-4 ár, þar af er ein önn helguð starfsþjálfun.  Þá er hægt að hefja framhaldsnám í tækniskólum ef námsfólk hefur lokið grunnmenntun og síðan unnið í viðkomandi starfsgrein í að minnsta kosti þrjú ár.  Gert er ráð fyrir að framhaldsnám við tækniskóla taki 1-1½ ár á fullum námshraða.


    Háskólar

    Háskólar og aðrar æðri menntastofananir, þar á meðal tækniháskólar og listaháskólar, annast bæði vísindalegar rannsóknir og kennslu.  Grunnnám (bachelorgráða) tekur yfirleitt þrjú ár en framhaldsnám (kandidatsgráða) tvö ár.  Nemendur fara yfirleitt beint í kandidatsnám að lokinni bachelorgráðu.  Að kandidatsnámi loknu er hægt að taka meistarapróf eða doktorspróf. 

    Háskólar eru ýmist eintyngdir eða tvítyngdir (á finnsku og/eða sænsku). Þá fer stór hluti kennslu og rannsókna fram á ensku.  Háskólanám er ókeypis en námsfólki er skylt að skrá sig í stúdentaráð og greiða félagsgjöld þar.   

    Yfirleitt er sótt um inntöku í háskólanám á vorin.  Umsóknir í háskóla eru afgreiddar í sameiginlegu umsóknarferli en að því loknu eru umsækjendur boðaðir í inntökupróf. Nánari upplýsingar um námskrá er að finna á http://finland.cimo.fi/, á vefjum menntastofnana og á www.yliopistohaku.fi .


    Norræni háskólasamningurinn

    Norræni háskólasamningurinn tryggir öllum norrænum ríkisborgurum tækifæri til að stunda háskólanám í norrænu nágrannaríki á sömu eða svipuðum kjörum og íbúar viðkomandi lands.  Samkvæmt samningnum telst það nám sem lokið er í öðru norrænu ríki til tekna hjá æðri menntastofnunum í Finnlandi. Sú menntastofnun þar sem sótt er um metur nám sem lokið er.   Ráðlegt er að kynna sér fyrirfram hvaða skjöl æðri menntastofnanir í Finnlandi fara fram á til að geta metið námið.

     

    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 09.04.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang