Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Tollareglur og innflutningstakmarkanir

    Innflutningshöft

    ESB hefur sett reglur um vörugjöld á varning sem fluttur er milli aðildarríkja í söluskyni. Yfirvöld ríkjanna fylgjast með að reglunum sé hlýtt.

    Ferðamenn innan ESB-svæðisins, t.d. í Svíþjóð og Danmörku, mega taka með sér heim varning sem keyptur er með vörugjaldi í öðru aðildarríki, í ótakmörkuðu magni. Þeim ber skylda til að tilkynna um varninginn við heimkomuna og óheimilt er að leggja vörugjald á varninginn á ný í heimalandi ferðamannsins. Einu skilyrðin eru að varningurinn sé til eigin nota eða fjölskyldunnar eða til gjafa.

    Ísland, Noregur, Færeyjar og Grænland eru ekki í Evrópusambandinu. Tollfrjáls innflutningur frá þessum svæðum er takmarkaður. Um ferðamenn sem koma til Álandseyja eða þaðan áfram til finnska meginlandsins gilda sömu reglur og um ferðamenn sem koma frá öðrum ríkjum en ESB-ríkjum.

    Í slíkum tilvikum má taka með sér 1 lítra af sterku áfengi eða 2 lítra af styrktu víni (hámarksstyrkur alkóhóls 22%) eða 2 lítra af freyðivíni eða 4 lítra af léttu víni og 16 lítra af bjór. Ferðamaður má taka með sér mismunandi tegundir áfengra drykkja inn í landið en þó innan leyfilegra marka. Hann má t.d. taka með sér hálfan lítra af sterku áfengi og 1 lítra af styrktu víni. Reglurnar gilda þó ekki um bjór og annað vín en freyðivín. Ekki má selja einstaklingi sem ferðast frá Álandseyjum til finnska meginlandsins meira en 2 lítra af bjór.


    Áfengi og aldurstakmark í Finnlandi

    Í Finnlandi má fólk sem hefur náð 18 ára aldri hafa áfengi undir höndum. Aldurstakmörk eru þó 20 ár fyrir sterkt áfengi með áfengisstyrk yfir 22%. Almenningi er algjörlega bannað að flytja inn hreint alkóhól.

    Varðandi tóbaksvörur má taka með sér 200 sígarettur eða 100 smávindla (í mesta lagi 3 g/stk) eða 50 vindla eða 250 g af pípu- og sígarettutóbaki. Við komuna til landsins má hafa með sér mismunandi tegundir tóbaks að því tilskildu að magnið sé innan leyfilegra marka. Það má til dæmis taka með sér 100 sígarettur og 25 vindla.


    Ly

    Frá ESB-ríkjum má taka með sér lyfseðilsskyld lyf og fæðubótarefni til eigin nota sem samsvarar eins árs forða, en frá öðrum ríkjum en ESB er leyfilegt að hafa með sér forða til þriggja mánaða. Innan Schengen-svæðisins má taka með sér lyf til eigin afnota á ferðalaginu, en um leið þarf að hafa í fórum sér lyfseðil og flutningsvottorð, þ.e. Schengen-lyfjavottorð sem hægt er að fá þegar keypt eru lyfseðilsskyld lyf í heimalandinu. Einstaklingar með lögheimili í Finnlandi mega því ekki taka með sér lyf sem flokkuð eru sem ávana- eða fíknilyf frá öðrum ríkjum á Schengen-svæðinu til Finnlands. Lyf sem flokkast sem ávana- eða fíknilyf má flytja inn frá ríkjum utan Schengen-svæðisins til eigin nota sem samsvara í mesta lagi hálfs mánaðar forða. Þá eru strangar sérreglur um innflutning á lyfjum sem innihalda buprenorfinum og metadón.

    Ef þörf krefur verða ferðamenn að geta sýnt fram á að lyfin séu til eigin nota. Þegar um lyfseðilsskyld lyf er að ræða er sýndur lyfseðill eða læknisvottorð sem ferðamaður verður að hafa í fórum sínum við komuna til Finnlands. Í Finnlandi er hægt að fá Schengen-lyfjavottorð í apótekum.

    Nánari upplýsingar veitir Lyfjastofnun

    Upplýsingar um önnur innflutningshöft eru á vef Tollstjóra.


    Búslóð

    Persónulegar eigur einstaklings sem flytur til Finnlands frá öðru ESB-ríki, með vissum undantekningum, eru undanþegnar innflutningsgjöldum og öðrum reglum.

    Til dæmis virðisaukaskatti og bifreiðagjöldum á vissum fyrirtækjum. Ástæður fyrir takmörkunum eru til dæmis almennt siðferði, almennt öryggi, eða verndun dýra eða gróðurs.

    Þegar flutt er frá öðru ríki en ESB-ríkjum til Finnlands eða frá Finnlandi til ríkis utan ESB eða innan ESB til eða frá Álandseyjum ber að tilkynna um búslóðina til Tollstjóra á útflutnings- og innflutningsstað þegar búslóðin er send á milli ríkja. 


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 09.04.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang