Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Heilsugæsla og almannatryggingar

    Heilsugæsla og sjúkratryggingar

    Einstaklingur sem flyst frá öðru norrænu ríki til Finnlands þarf að tilkynna um flutninginn hjá skrifstofu í viðkomandi sveitarfélagi sem síðan sendir kennitölu til Tryggingastofnunar sem annast almannatryggingar. Það er að segja ef kennitalan hefur ekki þegar borist henni þá þegar. Þó ber ætíð að sækja sérstaklega um félagsréttindi hjá Tryggingastofnun sem allir íbúar landsins eiga rétt á.

    Sjúkratryggingar eru réttindi sem fylgja því almannatryggingakerfi sem maður er hluti af ef maður starfar innan Evrópusambandsins, Evrópska efnahagssvæðisins eða annars samningslands. Launþegi/einstaklingur í einkarekstri sem flytur til Finnlands frá öðru norrænu landi, öðlast almannatryggingaréttindi í Finnlandi ef vinnan stendur lengur en fjóra mánuði. Þess skal gæta að ef vinnan stendur skemur en fjóra mánuði öðlast viðkomandi ekki réttindi til sjúkratrygginga í neinu Norðurlandanna (innifalið í sjúkratryggingunni eru sjúkradagpeningar, fæðingarorlof móður, sérstakar fæðingarorlofsgreiðslur til móður, fæðingarorlof föður, foreldragreiðslur og sérstök forsjárviðbót).

    Fólk sem nýtur atvinnutengdra lífeyrisréttinda á einnig rétt á opinberri heilbrigðisþjónustu óháð lengd ráðningartíma og óháð því hvort viðkomandi á lögheimili í Finnlandi. Í slíkum tilvikum getur einstaklingur fengið vottorð frá Tryggingastofnun um að hann eigi rétt á heilbrigðisþjónustu í Finnlandi. Slíku vottorði er framvísað á opinberum heilsugæslustofnunum til vitnis um að viðkomandi einstaklingur eigi rétt á heilbrigðisþjónustu.

    Einstaklingur sem flyst tímabundið til Finnlands á yfirleitt ekki rétt á almannatryggingum Tryggingastofnunar. Til dæmis eru erlendir námsmenn taldir búa tímabundið í Finnlandi ef nám þeirra er aðalástæðan fyrir dvöl þeirra í landinu. Undanþegnir eru námsmenn sem flytja tímabundið til Finnlands frá öðru norrænu ríki: þeir eiga rétt á almannatryggingum ef þeir eru með skráð lögheimili í Finnlandi.

    Fyrir utan grunntryggingu hjá Tryggingastofnun bjóða tryggingafélögin upp á viðbótar sjúkratryggingar sem einstaklingum er frjálst að bæta við. Slík trygging veitir meira fjárhagslegt öryggi við veikindi.


    Heilsugæsla sveitarfélaganna

    Allir þeir sem eru heimilisfastir í Finnlandi hafa aðgang að heilsugæslu sveitarfélaganna. Sú heilsugæsla sem sveitarfélögin hafa á hendi er meðal annars rekstur heilsugæslustöðva, sérfræðingar á sjúkrahúsum, heilbrigðisuppeldi, heilbrigðisráðgjöf til verðandi mæðra og mæðra með nýfædd börn, heilsugæsla í skólum, heilsugæsla á vinnustöðum, heilsugæsla fyrir námsmenn, tannlækningar, geðheilsugæsla, endurhæfing og umhverfisheilsugæsla.

    Við veikindi á maður fyrst og fremst að snúa sér til heilsugæslustöðvarinnar í sveitarfélaginu. Þurfi maður á sjúkrahúsvist að halda, skrifar læknirinn tilvísun til sjúkrahússins. Við bráð veikindi er ekki þörf á tilvísun.

    Oftast þarf að greiða fyrir heimsóknir á heilsugæslustöðvar og sjúkrahús. Upplýsingar um verð fást hjá sveitarfélaginu. Vefslóðir finnskra sveitarfélaga eru á vefslóðinni kommunerna.net.


    Sjúkratrygging

    Sjúkratryggingakerfið hefur umsjón með opinberri heilsugæslu og tryggir að borgararnir hafi möguleika á að fá heilbrigðisaðstoð hjá einkareknum heilbrigðisstofnunum á viðráðanlegu verði. Þetta kerfi greiðir að hluta til fyrir heimsóknir til sjálfstætt starfandi lækna, rannsóknir hjá einkareknum sjúkrastofnunum, ákveðin útgjöld við meðhöndlun og lyf hjá lækni eða tannlækni.

    Yfirleitt fá allir íbúar í Finnlandi sjúkratryggingaskírteini, s.k. FPA-kort. Skírteinið er sönnun þess að einstaklingurinn eigi rétt á almannatryggingum í Finnlandi. Einstaklingur sem flytur frá Finnlandi til annars norræns ríkis þarf að skila FPA-kortinu til Tryggingastofnunar áður en hann yfirgefur landið, ef það er ekki mat stofnunarinnar að hann eigi rétt á almannatryggingum í Finnlandi á meðan dvalist er erlendis.

     

    Þú getur lesið meira um þessi réttindi og um FPA-kortið á (www.fpa.fi).


    Sjúkradagpeningar 

    Sjúkradagpeningar eru hluti af þeim sjúkratryggingum sem Tryggingastofnun sér um. Tekjutengdir sjúkradagpeningar eru greiddir til umsækjenda sem eru milli 16 og 67 ára eru heimilisfastir í Finnlandi og geta ekki stundað vinnu vegna veikinda. Þetta á við um launþega, einstaklinga í einkarekstri, heimavinnandi einstaklinga, atvinnulausa, námsmenn, einstaklinga í orlofi eða leyfi. Viðkomandi skal hafa verið í vinnu eða námi í þrjá mánuði áður en veikindin gerðu vart við sig, annars á maður ekki rétt á sjúkradagpeningum fyrr en maður hefur verið óvinnufær í 55 daga samfleytt. Tryggingastofnun tekur mið af læknisvottorði þegar ákveðið er hvort umsækjandinn er óvinnufær og reiknar bæturnar út frá árstekjum viðkomandi. Nánari upplýsingar á vef Tryggingastofnunar (www.fpa.fi).

    Athygli skal vakin á því að launþegar annars staðar að á Norðurlöndunum sem eru ráðnir til vinnu í Finnlandi skemur en fjóra mánuði tilheyra ekki finnska sjúkratryggingakerfinu og eiga þar með ekki rétt á sjúkradagpeningum.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 16.10.2009


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang