Norrænir ríkisborgarar hafa kosningarétt og geta boðið sig fram til bæjar- og sveitastjórnarkosninga í Finnlandi. Norrænir ríkisborgarar hafa einnig kosningarétt í leiðbeinandi allsherjaratkvæðagreiðslum bæjarstjórna og einnig þegar kosið er til Evrópuþingsins, en þó með vissum skilyrðum.
Sveitarstjórnarkosningar og aðrar atkvæðagreiðslur hjá sveitarfélögum
Finnskir
ríkisborgarar og ríkisborgarar frá öðrum aðildarríkjum Evrópusambandsins,
Íslandi og Noregi geta kosið í sveitastjórnarkosningum og öðrum
atkvæðagreiðslum hjá sveitarfélögum í Finnlandi þegar þeir hafa náð 18 ára
aldri á kosningadegi og átt lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi samkvæmt
þjóðskrá í a.m.k. 51 daga fyrir kosningadag, samkvæmt lögum um lögheimili
(2001/1994).
Einstaklingar sem
hafa kosningarétt í viðkomandi sveitarfélagi, geta einnig farið í framboð í
sömu kosningum ef þeir eru ekki sviptir forræði.
Kosningar til Evrópuþingsins
Ríkisborgarar frá
öðrum ESB-ríkjum sem náð hafa 18 ára aldri á kosningadaginn og eiga lögheimili
í Finnlandi, mega samkvæmt lögum um lögheimili (2001/1994) kjósa í Finnlandi
til Evrópuþings að því tilskildu að þeir hafi ekki glatað kosningarétti í því
aðildarríki ESB sem þeir eru ríkisborgarar. Til þess að geta nýtt kosningarétt
sinn í Finnlandi þurfa ríkisborgarar frá öðrum ESB-ríkjum þó að senda skriflega
umsókn til skrifstofu í viðkomandi sveitarfélagi eigi síðar en 80 dögum fyrir
kosningadag. Þeir sem hafa kosningarétt mega aðeins kjósa í einu ríki í sömu
kosningum til Evrópuþings.
Allir einstaklingar
sem mega kjósa og hafa skráð sig á kjörskrá í viðkomandi sveitarfélagi og hafa
ekki glatað kosningarétti í heimalandi sínu geta boðið sig fram í kosningum í
Finnlandi til Evrópuþings. Þó gilda aðrar reglur fyrir einstaklinga sem starfa
við stofnanir Evrópusambandsins.
Þing- og forsetakosningar
Einungis finnskir ríkisborgarar hafa kosningarétt og eru kjörgengir við þing- og forsetakosningar. Kjörskrá er gerð á Hagstofunni 51 degi fyrir kosningar, sem þýðir að aðeins þeir finnsku ríkisborgarar sem eru skráðir sem finnskir ríkisborgarar áður en kjörskrá er gerð, hafa kosningarétt.
Dómsmálaráðuneytið: (Vaalit.fi).
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 16.10.2009