Finnskt ríkisfang
fæst ýmist sjálfkrafa við fæðingu, með því að tilkynna um ósk sína eða sækja um
það. Það er Útlendingastofnun (Migrationsverket . http://www.migri.fi) sem úrskurðar hvort viðkomandi
fái, haldi eða glati finnsku ríkisfangi. Fjallað er um finnskt ríkisfang í
lögum (359/2003, breyt. 974/2007, http://www.finlex.fi/sv/laki/alkup/2003/20030359) sem
gengu í gildi 1. júní 2003.
Finnskt ríkisfang við fæðingu
Barn fær finnskt
ríkisfang við fæðingu ef móðirin er finnskur ríkisborgari eða ef faðirinn er
finnskur ríkisborgari og giftur móður barnsins. Barn fær einnig finnskt
ríkisfang ef það fæðist í Finnlandi og hægt er að staðfesta að faðir þess sé
finnskur ríkisborgari.
Umsókn um finnskan ríkisborgararétt
Einstaklingur sem
hefur áður verið finnskur ríkisborgari eða ríkisborgari á Íslandi, í Noregi,
Svíþjóð eða Danmörku, getur öðlast finnst ríkisfang með því að tilkynna
skriflega um ósk sína. Þá þarf hann að hafa átt lögheimili í Finnlandi í
samfleytt sex ár og ekki verið dæmdur til fangelsisvistar.
Einstaklingur sem
hefur glatað finnsku ríkisfangi en síðan verið samfleytt ríkisborgari á Íslandi,
í Noregi, Svíþjóð eða Danmörku, fær finnskt ríkisfang með því að tilkynna um
ósk sína þegar hann flytur til Finnlands.
Kröfur til umsækjenda um finnskt ríkisfang
Útlendingur sem getur sannað með fullnægjandi
hætti hver hann sé getur sótt um finnskt ríkisfang ef:
- hefur náð 18 ára aldrei eða gengið í hjónaband
fyrir þann tíma
- hefur verið búsettur í Finnlandi nægilega
lengi áður en sótt er um
- hefur hvorki gert sig sekan um refsiverðan
verknað né verið úrskurðaður í nálgunarbann
- hefur hvorki vanrækt framfærsluskyldu né
greiðslur opinberra gjalda
- getur gert grein fyrir tekjum sínum með
fullnægjandi hætti og
- hefur fullnægjandi vald á finnsku, sænsku eða
finnsku táknmáli.
Yfirleitt er þess að krafist að umsækjandi
hafi verið búsettur í Finnlandi í sex ár. Umsækjandi sem hefur áður haft
finnskt ríkisfang eða er ríkisborgari á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð eða Danmörku
getur öðlast finnskt ríkisfang ef hann hefur verið búsettur í samfleytt tvö ár
í Finnlandi og er það enn.
Undir vissum kringumstæðum er hægt að gefa undanþágu:
Makar
Maki finnsks
ríkisborgara getur öðlast finnskt ríkisfang ef makarnir hafa búið saman í
a.m.k. þrjú ár og gera það enn, ef umsækjandi hefur búið í Finnlandi samfleytt
undanfarin fjögur ár eða samtals sex ár eftir að viðkomandi náði 15 ára aldri,
þar af síðustu tvö ár samfleytt.
Meðumsækjendur
Meðumsækjandi undir
15 ára aldri getur öðlast finnskt ríkisfang ef hann á lögheimili í Finnlandi
þegar umsóknin er afgreidd. Meðumsækjandi sem náð hefur 15 ára aldri getur
öðlast finnskt ríkisfang ef hann við afgreiðslu umsóknar hefur átt lögheimili í
Finnlandi samfleytt undanfarin fjögur ár eða samtals sex ár frá sjö ára aldri,
þar af síðustu tvö árin samfleytt.
Börn
Forsjáraðili barns
getur sótt um finnskt ríkisfang fyrir hönd þess, ef hann er sjálfur finnskur ríkisborgari
og barnið býr hjá honum.
Barn sem náð hefur
15 ára aldri þegar umsóknin er afgreidd getur öðlast finnskt ríkisfang ef það
hefur átt lögheimili í Finnlandi samfleytt undanfarin fjögur ár eða samtals sex
ár frá sjö ára aldri, þar af síðustu tvö árin samfleytt.
Hafi barnið áður
haft finnskt eða norrænt ríkisfang þarf barnið þó aðeins að hafa átt lögheimili
í Finnlandi í tvö ár.
Tvöfaldur ríkisborgararéttur
Lagabreytingar frá
1. júní 2003 heimila finnskum ríkisborgurum að halda ríkisfangi sínu þótt þeir
öðlist einnig ríkisborgararétt í öðru ríki. Þegar útlendingi er veittur
finnskur ríkisborgararéttur er þess ekki krafist að hann afsali sér fyrri
ríkisborgararétti sínum.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 27.10.2009