Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Spurningar og svör

    21. Hvernig athuga ég hvort lyfin mín eru flokkuð sem ávana- og fíkniefni?

    Þú finnur lista yfir lyf sem teljast ávana- og fíkniefni á Finlex Ajantasainen lainsäädäntö. Skrifaðu 1709/1993 í hvíta reitinn, smelltu á „hae” (leita) og veldu efsta skjalið á listanum.
    22. Innan tíðar flyt ég frá Noregi til Finnlands og stysta leiðin er gegnum Svíþjóð. Á ég fara með búslóðina gegnum tollinn í Svíþjóð þótt ég sé bara á leið í gegn og ætli beina leið til Finnlands?

    Þegar þú dvelur tímabundið í Svíþjóð telst farangurinn ekki búslóð og þú þarft þess vegna ekki að láta sænsk tollayfirvöld vita. Það eru þó takmarkanir á því hvað þú mátt taka mikið af áfengi og tóbaki, landbúnaðarafurðum, gróðri og skotvopnum (sjá hér að ofan). Þegar þú kemur til Finnlands áttu að láta finnsk tollayfirvöld vita af búslóðinni.
    23. Get ég tekið sænska farsímann minn með til Finnlands og virkar sænska áskriftin mín í Finnlandi?

    Auðvitað getur þú gert það! Áskriftin þín virkar í Finnlandi en samtölin fara gegnum símafyrirtækið þitt. Ef það er sænskt fyrirtæki, munu öll samtöl fara gegnum Svíþjóð. þau flokkast sem utanlandssímtöl og þú greiðir samkvæmt því. Það sama gildir ef þú ferð á netið í farsímanum (WAP).
    24. Ég ætla að flytja til Svíþjóðar. Á ég að tilkynna það einhvers staðar?

    Þú átt alltaf að tilkynna flutninga. Hvað þú þarft að tilkynna það víða fer eftir því hvort um er að ræða tímabundinn flutning eða endanlegan. Þú þarft alltaf að tilkynna póstinum að þú sért að flytja og ef um endanlegan flutning er að ræða, þarftu að tilkynna það á Hagstofunni. Ef þú færð greiðslur frá Tryggingastofnun (Kela) og þú ert að flytja endanlega, þá þarftu að skila Kela-kortinu þínu og um leið og þú gerir það, þarftu að athuga hvernig greiðslunum verði háttað í framtíðinni. Fyrir utan að hafa samband við Hagstofuna og Tryggingastofnun (Kela) ættirðu að hafa samband við skattstofuna, lífeyrissjóðinn, bankann og tryggingafélagið, ef um endanlegan flutning er að ræða.
    25. Hvar fæ ég hjálp við að flytja og hvernig finn ég húsnæði?

    Samkvæmt 9. grein samnings Norðurlandanna um félagslegt öryggi (almannatryggingar) eiga viðkomandi yfirvöld að veita aðstoð við flutninga. Sum bæjarfélög bjóða húsnæði sem hentar fötluðum. Möguleikarnir á að fá slíkt húsnæði fara eftir því til hvaða bæjarfélags þú flytur og í hvernig húsnæði þú getur búið. Hafðu samband við yfirvöld í bæjarfélaginu sem þú ætlar að flytja til. Þú gætir líka beðið núverandi bæjarfélag að hafa samband við nýja bæjarfélagið.
    26. Hvert á ég að snúa mér ef ég vil kæra?

    Í bæjar- og sveitarfélögum er umboðsmaður sjúklinga sem fer með kærur innan heilbrigðiskerfisins og umboðsmaður félagsmála sem fer með kærur hjá hinu opinbera. Það er síðan umboðsmaður þingsins Eduskunnan Oikeusasiamies sem fylgist með starfsemi ríkisstofnana og ríkiskerfisins.
    Næsta › ‹    |   1   |   2   |   3   |  ›

     

    NámVinnaBörn og fjölskylda


     

     

    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang