Finnland
Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi
Spurningar og svör
- 11. Get ég greitt atkvæði við forsetakosningar í Finnlandi?
- Aðeins finnskir ríkisborgarar hafa kosningarétt við þing- og forsetakosningar.
- 12. Ég er á leið til Danmerkur með hundinn minn og hef heyrt að gæludýr eigi að hafa gæludýravegabréf á ferðalögum innan Evrópusambandsins. Hvar get ég fengið svona vegabréf?
- Þegar maður hefur gæludýr meðferðis á ferðalagi í löndum Evrópusambandsins er skylda að hafa gæludýravegabréf meðferðis. Innan Evrópusambandsins er hægt að kaupa vegabréfið hjá þeim dýralækni sem sinnir viðkomandi dýri. Þegar vegabréfið er gefið út, gengur dýralæknirinn úr skugga um að gæludýrið sé merkt með annað hvort húðflúri eða örflögu og að dýrið sé bólusett gegn hundaæði. Gæludýravegabréfið gildir þar til hundaæðisbólusetningin er runnin út. Dýralæknirinn skráir einnig upplýsingar um aðrar bólusetningar í vegabréfið og bandormslyfjagjafir.
- 13. Ég bý stutt frá landamærunum og fer oft með hundinn minn yfir til Svíþjóðar. Hundurinn á gæludýravegabréf, en hvernig eru reglurnar um bandormslyfjagjafir?
- Lyfjameðferðin er ekki skylda ef dýrið kemur beint frá Svíþjóð eða Noregi eða ef dýrið er yngra en þriggja mánaða. Það eru heldur ekki gerðar kröfur um lyfjameðferð ef dýrið er komið aftur til Finnlands innan 24 klukkustunda frá því að það fór úr landi.
- 14. Við erum á leið til Finnlands til að taka þátt í keppni. Samkvæmt reglunum á hesturinn að vera farinn frá Finnlandi í síðasta lagi fimm dögum eftir að keppninni lýkur. Hvað gerist ef við lengjum dvölina?
- Til vonar og vara ættuð þið að biðja dýralækni að skoða hestinn áður en þið leggið af stað að heiman. Þá gildir einu hvort þið seinkið brottförinni frá Finnlandi.
- 15. Hvert á ég að snúa mér þegar ég veikist og get ekki stundað vinnu?
- Öllum atvinnuveitendum ber skylda til að sjá starfsfólki sínu fyrir lífeyris- og slysatryggingu og fyrir heilsugæslu.
Samkvæmt kjarasamningum á launþeginn að tilkynna atvinnuveitandanum um veikindin um leið og hún eða hann verður óvinnufær og um leið að segja um það bil hvað fjarvistin gæti orðið löng. Það er oftast nægilegt að afhenda vinnuveitandanum læknisvottorð til að eiga rétt á sjúkradagpeningum á veikindatímabilinu.
- 16. Hver á rétt á Kela-korti?
- Sjúkrasamlagsskírteinið, hið svokallaða Kela-kort, er afhent öllum þeim sem eru heimilisfastir í Finnlandi. Kortið er sönnun þess að viðkomandi á rétt á að nota almannatryggingakerfið í Finnlandi. Þú færð kortið hjá Tryggingastofnun (Kela).
- 17. Um hver jól vinn ég tímabundið í Finnlandi (um það bil tvo mánuði í hvert sinn) og ég er sem sagt utan við almannatryggingakerfið. Hvert á ég að snúa mér ef ég veikist?
- Samkvæmt samningi milli Norðurlandanna er ekki nauðsynlegt fyrir íbúa á Norðurlöndunum að framvísa evrópska sjúkrasamlagsskírteininu ef þeir veikjast skyndilega í öðru norrænu landi en því sem þeir búa í. Kostnaði við umönnun vegna slíkra veikinda er ekki skipt á milli landanna. Ef þú veikist, áttu til að byrja með að snúa þér til heilsugæslustöðvar í því sveitarfélagi sem þú ert í. Ef þú þarft að fara á sjúkrahús útbýr læknirinn á heilsugæslustöðinni tilvísun fyrir þig. Við bráð veikindi er ekki þörf á tilvísun.
- 18. Ég er lífeyrisþegi og bý í Finnlandi en ég fæ hluta af lífeyrisgreiðslunum frá Íslandi. Ég greiði skatt af íslenska lífeyrinum á Íslandi, og ég á einnig að greiða gjald af lífeyrinum sem ég fæ í Finnlandi. Bannar norræni skattasamningurinn ekki tvísköttun?
- Lífeyrisþegar frá Svíþjóð, Danmörku og Íslandi greiða aðeins skatt í greiðslulandinu, ekki í Finnlandi. Lífeyrisgreiðslur frá þessum löndum eru þó taldar með í samanlögðum tekjum viðkomandi þegar reikna á út hvaða skatt viðkomandi á að borga í Finnlandi. Þess vegna er áríðandi að hafa samband við skattayfirvöld í Finnlandi um leið og ákvörðun um upphæð lífeyrisgreiðslna frá öðru landi hefur verið tekin – annars er hætta á að maður þurfi að borga skatt eftir á.
Það á ekki að greiða skatt af lífeyrisgreiðslum tvisvar, en manni ber skylda til að greiða „Sjúkratryggingagjald þess tryggða”. Sjúkratryggingagjaldið er ekki skattur og þess vegna er þetta ekki tvísköttun.
- 19. Ég vann í Finnlandi á 7. áratugnum. Á ég rétt á lífeyrisgreiðslum fyrir það tímabil og hvert á ég að snúa mér til að fá þær greiðslur?
- Lífeyrir er alltaf greiddur í samræmi við löggjöf í því landi sem maður vann í. Reglugerðir sem ákvarða hve lengi maður verður að hafa unnið til að eiga rétt á greiðslum eru mismunandi frá einu landi til annars. Undirstöðulífeyrisgreiðslurnar í Finnlandi eru ellilífeyrir og lífeyrissjóðsgreiðslur. Ellilífeyrir byggist á því hvar maður býr og það þýðir að réttur til ellilífeyris og upphæð ellilífeyris fer eftir því hversu lengi maður hefur búið í Finnlandi, það er að segja tryggingatímabilið. Lífeyrissjóðsgreiðslur eru byggðar á atvinnu og því eiga allir sem hafa unnið í Finnlandi rétt á þeim, áháð því hversu lengi þeir unnu þar.
Í samræmi við samning milli Evrópusambandslanda og landa á Evrópska efnahagssvæðinu er einnig hægt að sækja um samansöfnuð lífeyrissjóðsréttindi frá hinum Evrópusambandslöndunum eða löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins ef launþeginn hefur unnið í öðrum löndum. Þegar þú ferð á ellilaun geturðu sótt um finnskar lífeyrissjóðsgreiðslur gegnum þá lífeyrissjóðstryggingamiðstöð þar sem þú varst tryggð(ur) síðast í landinu sem þú býrð í nú.
- 20. Eftir nokkra mánuði flyt ég frá Finnlandi til Svíþjóðar. Búslóðin inniheldur meðal annars nokkur málverk sem ég erfði eftir ömmu mína og gamla byssu frá 19. öld. Á ég að tilkynna tollinum um þessa hluti?
- Áður en hlutir sem hafa menningarlegt gildi eru fluttir út, þarf að fá útflutningsleyfi. Leyfið er gefið út af Safnastjórn (Museovirasto), Þjóðminjasafninu (Valtion taidemuseo), sumum landsbyggðasöfnum, Þjóðskjalasafni (Kansallisarkisto) og bæjarskjalasöfnum. Það eru einnig takmarkanir settar við flutninga á skotvopnum. Ef vopnið sem þú erfðir er enn flokkað sem skotvopn og þú hefur leyfi fyrir því, gefur leyfið þér rétt til að flytja það. En þú þarft að fá nýtt leyfi ef dvölin er lengri en þrír mánuðir og vopnið er enn í landinu. Þú þarft að sækja um leyfi í Svíþjóð og muna að gera það tímanlega. Frekari upplýsingar finnur þú á Tullin.
NámVinnaBörn og fjölskylda
Útgefandi:
Ved Stranden 18 1061 København K
Sími:
+45 33 96 02 00
Netfang