Finnland
Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi
Spurningar og svör
- 1. Ég er norskur ríkisborgari, get ég tekið húsnæðislán í Finnlandi?
- Pr? Ertu að velta fyrir þér að kaupa húsnæði til að búa í því eða er það fjárfesting? Bankarnir krefjast þess oft að maður sé með finnska kennitölu þegar maður sækir um lán. Ef þú ætlar að kaupa fast húsnæði í Finnlandi og flytja sjálfur inn og vera þar með heimilisfastur í Finnlandi, þá færðu finnska kennitölu.
Fyrir utan kennitöluna er margt annað sem hefur áhrif á það hvort maður getur fengið lán. Atvinna, laun og skuldastaða geta til dæmis skipt máli. Frekari upplýsingar um lánamöguleika færðu í bankanum þínum.
- 2. Kunningi minn sagði mér að hann fengi ekki að byggja sér húsnæði á Álandseyjum af því að hann er ekki finnskur ríkisborgari. Er það rétt?
- Samkvæmt heimastjórnarlögum Álandseyja í lagabálki um lóðakaup (3.1.1975/3 §2) er tekið fram að sá sem ekki er ríkisborgari á Álandseyjum en hyggur á fasteignakaup, þarf að sækja um leyfi hjá stjórn Álandseyja. Þessar takmarkanir á rétti til að kaupa og eiga fasteignir eru til að tryggja það að lóðir og jarðir verði áfram í eigu Álendinga.
Þeir sem flytja til Álandseyja, hafa búið þar í að minnsta kosti fimm ár og hafa fullnægjandi kunnáttu í sænsku, geta sótt um og fengið ríkisborgararétt á Álandseyjum.
- 3. Ég er á leið til Finnlands sem skiptinemi við háskóla (um það bil eitt ár). Hvar á ég að skrá flutninginn?
- Hvort sem maður flytur innanlands eða til útlanda á maður alltaf að tilkynna flutning til Póstsins. Þar að auki gæti verið að Hagstofan í heimalandinu krefðist þess að þú tilkynntir tímabundna búsetu í öðru landi.
Þar eð dvölin í Finnlandi er innan við ár, er ekki nauðsynlegt að skrá sig í þjóðskrá í Finnlandi. Ef þú óskar þess, áttu kost á að sækja um að fá bráðabirgðakennitölu. Hana færðu með því að fara á bæjarskrifstofurnar, á skattstofuna eða til Tryggingastofnunar (Kela).
- 4. Ég mun innan skamms flytja frá Finnlandi til Danmerkur vegna vinnunnar, en konan mín og börnin verða áfram í Finnlandi og fast heimili mitt verður áfram í Finnlandi. Samkvæmt lögum á ég að fara með flutningsvottorð til Danmerkur. Hvað á ég að gera?
- Ef þú verður lengur en sex mánuði í Danmörku, ber þér að tilkynna hagstofunni í nýja bæjarfélaginu flutninginn. Ef þú ert með heimilisfang í tveimur Norðurlöndum samtímis, verður þú skráður þar sem þú ert meira en helming ársins. Ef þú þarft á frekari upplýsingum að halda, hafðu þá samband við finnsku hagstofuna.
- 5. Hvernig og hvenær getur maðurinn minn sem er Svíi sótt um finnskan ríkisborgararétt?
- Sænskir ríkisborgarar fá finnskan ríkisborgararétt ef þeir hafa verið heimilisfastir í Finnlandi síðustu tvö árin, án hlés. Maður sækir um ríkisborgararétt með því að fylla út eyðublöð sem fást hjá Útlendingastofnun (Ulkomaalaisvirasto).
- 6. Ég er á leið í frí til Svíþjóðar og Noregs og er á bíl sem ég tók með mér frá Þýskalandi, en hann er á flutningsnúmerum. Er í lagi að ég ferðist í þessum bíl?
- Bifreiðin er á flutningsnúmerum sem eru samþykkt af tollyfirvöldum og það gefur þér leyfi til að nota bílinn án þess að borga bifreiðagjöld í hæsta lagi þrjá mánuði. Á því tímabili máttu nota bílinn hvar sem er innan Evrópusambandsins og á Norðurlöndunum. Þér ber sem sagt ekki að skrá bílinn neins staðar né hafa sérstök leyfi til að nota bílinn í sumarfríinu.
- 7. Ég fer sem skiptinemi frá Svíþjóð til Finnlands. Lánasjóður námsmanna mun leggja námslánin mín inn á reikninginn minn í Svíþjóð. Hvernig væri auðveldast að koma daglegum fjármálum mínum í gott horf?
- Ef þú vilt opna reikning í finnskum banka væri upplagt að hafa inntökubréf frá skólanum meðferðis og einnig stúdentapassa ef þú átt slíkan. Þú gætir einnig beðið bankann þinn um meðmæli þar sem það er staðfest að þú sért í viðskiptum í viðkomandi banka í heimalandinu.
Þú þarft þó ekki að vera með finnskan bankareikning ef þú ert með greiðslukort sem hægt er að nota í útlöndum (til dæmis Electronic debetkort eða kreditkort). Greiðslur milli ESB-landa er auðveldast að framkvæma í heimabanka og fjölmargir bankar taka ekki aukagreiðslu fyrir að millifæra peninga innan ESB ef greiðandi veit reikningsnúmer móttakandans í IBAN-formi og er með SWIFT-kóðann. Þú getur fengið frekari upplýsingar í bankanum þínum.
- 8. Hvar finn ég upplýsingar um sænskumælandi leikskóla í Esbo? Hvað kostar að hafa barn þar?
- Öll börn undir skólaaldri eiga rétt á gæslu, annaðhvort á stofnun eða hjá dagforeldri. Bæjarfélagið tekur mið af tekjum heimilisins þegar gjaldið er reiknað út. Þú getur nálgast upplýsingar um möguleikana á gæslu á heimasíðum bæjarfélaganna, í þessu tilviki er það www.espoo.fi. Lista yfir bæjar- og sveitarfélög í Finnlandi og heimilisföng þeirra finnur þú á Suomi.fi.
- 9. Ég hef verið í námi í bifvélavirkjun við verkmenntaskóla í Svíþjóð en nú langar mig til að flytja til kærustunnar sem býr í Finnlandi. Hvar get ég haldið náminu áfram og get ég fengið þau próf metin sem ég hef staðist nú þegar?
- Samkvæmt norræna samningnum um framhaldsmenntun skal nemanda frá öðru norrænu landi boðið upp á ókeypis skólagöngu við mennta- eða verkmenntaskóla í Finnlandi. Þú finnur lista yfir verkmenntaskóla í Finnlandi á Edu-skránni yfir menntastofnanir.
Samkvæmt 5. grein samnings um norræna samvinnu milli mennta- og verkmenntaskóla í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, á nemandi sem hefur þegar lokið hluta af menntun sinni í öðru norrænu landi rétt á að fá þann hluta námsins fluttan til menntastofnunar í öðru norrænu landi þar sem hann eða hún heldur náminu áfram, svo framarlega sem menntastofnunin þar sem námið hófst getur staðfest þá hluta námsins sem nemandinn hefur lokið við. Þú finnur samninginn hér: Norden-verkkosivuilta.
- 10. Get ég greitt atkvæði í Evrópuþingskosningum bæði í Finnlandi og Svíþjóð?
- Ríkisborgarar í meðlimslöndum Evrópusambandsins hafa kosningarétt við kosningar til Evrópuþingsins. Ef þú vilt nota kosningaréttinn í því landi sem þú ert stödd/staddur í tímabundið, skaltu, í síðasta lagi 80 dögum fyrir kjördag, senda bæjarskrifstofunni skriflega umsókn um að fá leyfi til að nota kosningaréttinn. Þú getur aðeins sótt um í einu landi, því sá eða sú sem hefur kosningarétt getur aðeins notað þann rétt í einu landi við Evrópuþingskosningar.
NámVinnaBörn og fjölskylda
Útgefandi:
Ved Stranden 18 1061 København K
Sími:
+45 33 96 02 00
Netfang