Reglurnar gilda fyrir húsdýr sem eru á ferð með ferðalangnum og hesta sem ekki er ætlunin að selja eða afhenda nýjum eiganda í Finnlandi. Reglur um hunda, ketti og frettur eru í kaflanum „Að flytja hunda eða ketti til Finnlands“.
Hross
Keppnisferðir með hross sem eru skráð á
Norðurlöndum: Ekki þarf heilbrigðisvottorð (JSM förordning 1093/2001) fyrir
hesta sem eru skráðir í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi eða Danmörku ef eftirfarandi
skilyrði eru fyrir hendi:
- farið sé með hest á milli ríkja til þátttöku í keppni í
fyrsta lagi fimm dögum fyrir keppni og í síðasta lagi fimm dögum eftir að
keppni lýkur;
- hestinum fylgi fyrir keppni vottorð um að hann sé skráður
í keppnina;
- hestinum fylgi vottorð eftir keppnina um að hann hafi
tekið þátt í keppninni;
- vottorð sem getið er í 3. lið er gefið út af dýralækni
sem hefur umsjón með keppninni, eða, ef keppnin krefst ekki eftirlits
dýralæknis, af aðaldómara keppninnar;
- hestinum fylgi skilríki (hestavegabréf); og
- hesturinn uppfylli allar almennar heilbrigðiskröfur.
Nánari upplýsingar um reglur og bönn hjá
matvælaöryggisstofnuninni Evira (www.evira.fi).
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 12.01.2010