Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Lífeyrir

    Finnska lífeyriskerfið

    Uppistaðan í finnska lífeyriskerfinu er ellilífeyrir og lífeyrissjóðsgreiðslur.

    Ellilífeyririnn er í umsjá Tryggingastofnunar (www.fpa.fi). Það sem ákvarðar greiðsluupphæð er hve lengi maður hefur verið heimilisfastur í Finnlandi og þar með hve lengi maður hefur verið tryggður. Það skiptir líka máli hvað maður fær í lífeyri annars staðar frá – aðallega eru það lífeyrissjóðsgreiðslur sem hafa áhrif á upphæðina.

    Vinnutengdur lífeyrir. Lífeyrir ræðst af samanlögðum vinnutekjum á aldrinum 16-68 ára. Lífeyrir ræðst einnig af tekjutengdum almannatryggingum, fæðingarorlofsgreiðslum, umönnunargreiðslum og námi.

    Umsjón og afgreiðsla lífeyriskerfisins er dreifð. Í einkageira eru lífeyristryggingar í höndum ýmissa lífeyrissjóða og sérlegra lífeyrisstofnana fyrir bændur og sjómenn. Lífeyriskerfið er dreift á mismunandi lífeyrissjóði en Lífeyrismiðstöðin (www.etk.fi) annast ýmis sameiginleg verkefni lífeyriskerfisins.

    Atvinnurekanda ber að tryggja allt starfsfólk sitt með lífeyrisgreiðslum í lífeyrissjóð. Bæði atvinnurekendur og starfsfólk greiða lífeyristryggingu. Atvinnurekandi greiðir alla upphæðina en dregur hluta hennar frá launum starfsmanna. Lífeyrissjóðurinn ábyrgist allar lífeyrisgreiðslur og greiðir mánaðarlegan lífeyri til lífeyrisþega þegar þeir uppfylla vissum skilyrðum.

    Sótt er um lífeyri í þann lífeyrissjóð sem starfsmaðurinn eða hinn sjálfstætt starfandi var síðast tryggður. Sjóðurinn sendir úrskurð um lífeyri til umsækjandans og greiðir lífeyrinn. Úrskurðurinn nær bæði til lífeyris frá opinberum og einkareknum vinnustöðum. Hægt er að afhenda eða senda umsókn til hvaða lífeyrissjóðs sem er eða til þjónustuborðs Tryggingastofu eða Lífeyrismiðstöðvarinnar.

    Þegar einstaklingar með lögheimili í Finnlandi sækja um lífeyri þar í landi geta þeir um leið sótt um þann lífeyri sem þeir eiga rétt á í ESB/EES-ríkjum og öðrum ríkjum sem Finnland hefur gert samninga við. Afgreiðsla á umsókn um lífeyrisgreiðslur hefst um leið í öllum ESB-ríkjum þegar umsóknin hefur borist í Finnlandi. Lífeyrismiðstöðin sendir upplýsingar úr umsókninni áfram til ESB/EES-ríkjanna og annarra ríkja sem samið hefur verið við. Lífeyrir er greiddur skilyrðislaust frá Finnlandi til útlanda.

    Nánari upplýsingar um lífeyri hjá Lífeyrismiðstöð (www.etk.fi/Default.aspx?Lang=4) eða á vefslóðinni Arbetspension.fi (www.arbetspension.fi).

    (Sjá krækju á Arbetspension.fi www.arbetspension.fi á lista yfir „Hagnýtar krækjur“. /JP)


    Skattur af lífeyri

    Lífeyrir sem greiddur er frá Finnlandi er yfirleitt skattlagður í Finnlandi þótt lífeyrisþeginn sé búsettur erlendis. Skatthlutfall lífeyris ræðst af tekjum lífeyrisþega.

    Grunnreglan er að einstaklingar sem búsettir eru erlendis greiði skatt af lífeyri frá Finnlandi bæði til finnskra yfirvalda og skattayfirvalda í búsetulandinu. Það er þá hlutverk búsetulandsins að leiðrétta hugsanlega tvísköttun.

    Skattasamningar milli Finnlands og nýja búsetulandsins geta stundum haft í för með sér að enginn skattur er greiddur af finnskum lífeyri til finnskra yfirvalda. Finnland og Spánn hafa t.d. gert með sér skattasamning sem við vissar aðstæður kemur í veg fyrir að greiddir séu skattar til finnskra yfirvalda af lífeyrisgreiðslum frá einkareknum fyrirtækjum og af ellilífeyri. Áður en flust er úr landi er ráðlegt að kanna hjá skattayfirvöldum hvaða áhrif hugsanlegir skattasamningar geta haft á skattgreiðslur af lífeyrisgreiðslum. Lífeyrisþegi verður að tilkynna um flutninginn og upplýsa skattayfirvöld um nýtt heimilisfang sitt.

    Nánari upplýsingar á vef Skattstjóra (www.skatt.fi) og norrænu vefgáttinni um skattamál (www.nordisketax.net).


    Lífeyrisgreiðslur frá öðru norrænu landi

    Lífeyrissjóðsgreiðslur koma alltaf frá landinu þar sem maður hefur unnið og eru í samræmi við löggjöf í því landi þar sem maður var launþegi. Lög og reglugerðir varðandi það hversu lengi maður þarf að hafa verið í vinnu og/eða búsettur í landinu til að hafa rétt til lífeyrissjóðsgreiðslna, eru mismunandi frá landi til lands.


    Umsókn

    Sótt er um lífeyrissjóðsgreiðslur frá öðru norrænu ríki í búsetulandinu á þar til gerðu umsóknareyðublaði. Einstaklingar sem búsettir eru í Finnlandi fylla út umsóknareyðublöð fyrir ellilífeyri, örorkulífeyri, ekkjulífeyri og barnabætur. Auk umsóknareyðublaðs þarf að fylla út U-fylgiskjal þar sem gefin eru upp þau tímabili þar sem umsækjandi var búsettur og starfaði erlendis.


    Skattur

    Lífeyrir sem greiddur er í öðru norrænu ríki er skattlagður í sama landi. Í sumum tilvikum er einnig greiddur skattur af greiðslunum í Finnlandi. Norræni tvísköttunarsamningurinn kveður þó á um hvernig komast má hjá tvísköttun.

    Lífeyrir sem greiddur er frá útlöndum skal gefinn upp í skattaframtali í Finnlandi undir fyrirsögninni Aðrar upplýsingar. Þar skal tekið fram hver greiði lífeyrinn og eins hvaða skattar hafa verið greiddir í landinu þar sem greiðslan fór fram.

    Breytingar voru gerðar á norræna tvísköttunarsamningnum þann 4. apríl 2008. Breytingarnar gengu í gildi 1. janúar 2009 og á það einnig við um nýjar lífeyrisgreiðslur. Lífeyrir er „nýr“ ef einstaklingurinn flutti til Finnlands eða greiðslur á lífeyri frá öðru norrænu ríki hófust síðar en 4. apríl 2008. Í þessum „nýjum lífeyrismálum“ er komið í veg fyrir tvísköttun með endurgreiðslum. Það þýðir að lífeyrinn er einnig skattlagður í Finnlandi en sá skattur sem greiddur er í einu norrænu ríki er endurgreiddur þannig að hann er dreginn frá skattlagningunni í Finnlandi. Endurgreiðslan getur verið hærri en skatturinn sem greiddur var af lífeyrinum í Finnlandi.

    Í svonefndum gömlum lífeyrismálum er komist hjá tvísköttun með undanþágu frá skatti. Þá er aðeins greiddur skattur í útborgunarlandinu en alls ekki í Finnlandi. Lífeyrir sem greiddur er í öðru norrænu ríki er þó reiknaður með í heildartekjum einstaklingsins, en þær ráða skatthlutfalli einstaklings í Finnlandi. Við undanþágu frá skatti tryggir „þakreglan“ að skattur sem greiddur er af lífeyristekjum frá Finnlandi og öðrum ríkjum má samanlagt ekki vera meiri en tekjuskattur sem greiddur væri af lífeyri sem væri aðeins greiddur út í Finnlandi.

    Nánari upplýsingar um greiðslur og skattlagningu á lífeyrisgreiðslum á vef Skattstjóra (www.skatt.fi) og norrænu vefgáttinni um skattamál (www.nordisketax.net).


    Sjúkratryggingagjald þess tryggða

    Af lífeyrisgreiðslum frá öðru landi ber að greiða sjúkratryggingagjald fyrir einstakling sem er búsettur í Finnlandi en sem fær lífeyrisgreiðslur bæði í Finnlandi og frá öðru norrænu landi. Sjúkratryggingagjaldið er ekki skattur og þetta er þess vegna tvísköttun innan Norðurlandanna.

     


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 16.10.2009


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang