Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Vörur og þjónusta

    Í Finnlandi er stundum farið fram á að einstaklingar hafi finnska kennitölu þegar samið er um þjónustu. Hafi menn ekki finnska kennitölu getur það haft áhrif á hvaða þjónusta stendur til boða.

    Neytendastofnun (www.kuluttajavirasto.fi) vinnur að því að auka öryggi og stöðu neytenda í þjóðfélaginu. Verksvið hennar eru allar neysluvörur og þjónustur og viðskipti á ýmsum stigum. Neytendaráðgjöf er opin alla virka daga kl. 9.00-15.00 í síma +358 (0)71 873 1901 (finnska) og +358 (0)71 873 1902 (sænska). Ráðgjafarþjónustu fyrir neytendur á sveitarfélagsskrifstofum er að finna á vefslóðinni Kuluttajavirasto/Konsumentverket.

    Hægt er að leita aðstoðar hjá Neytendaráðgjöf Neytendastofu. Neytendaráðgjöf veitir upplýsingar um réttindi og skyldur neytenda, úrræði þegar upp kemur ágreiningur milli neytenda og fyrirtækja og ráðgjöf í málum sem varða t.d. húsnæðismál og fasteignaviðskipti.


    Farsímaáskrift
     

    Farsímafyrirtæki geta gert kröfu um að maður framvísi finnskri kennitölu eða bráðabirgðakennitölu þegar skrifað er undir áskriftarsamning. Þegar maður greiðir fyrirfram fyrir þjónustuna er ekki krafa um kennitölu. 


    Nettenging
     

    Símafyrirtæki geta krafist þess að maður sýni finnska kennitölu eða bráðabirgðakennitölu þegar skrifað er undir samning um nettengingu. 


    Afnotagjald af sjónvarpi

    Skylt er að greiða afnotagjald af sjónvarpi ef hægt er að taka á móti stafrænu eða flaumrænu sjónvarpi á heimilinu. Sjónvarpstækin eru skráð hjá Kommunikationsverket (www.viestintavirasto.fi). Gefa þarf upp finnska kennitölu við skráningu sjónvarpstækis.

    Afnotagjöld sjónvarps er á hvert heimili, og því er aðeins greitt eitt afnotagjöld þótt fleiri sjónvarpstæki séu á heimilinu. Ekki þarf að greiða sérleg afnotagjöld fyrir sumarbústaði eða aðra staði þar sem horft er tímabundið á sjónvarp. Afnotagjöld eru ýmist greidd mánaðarlega eða einu sinni á ári. Afnotagjaldið nemur rúmlega 220 evrum frá og með 1. janúar 2009. Nánari upplýsingar um afnotagjöld á vefslóðinni www.tv-maksu.fi.

     


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 19.10.2009


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang