Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Að flytja hunda og ketti til Finnlands

    Eftirfarandi reglur gilda ef hundar, kettir eða frettur eru flutt til Finnlands frá öðrum Norðurlöndum:

    • Gæludýrið skal vera merkt með örflögu (mikrochip) eða húðflúri (auðlesið húðflúr eða örflaga sem er í samræmi við staðal ISO 11784 eða viðauka A sem fylgdi staðli ISO 11785). Sé örflagan af annarri tegund er eiganda dýrsins skylt að eiga tæki sem getur lesið örflöguna. Dýrin verður að merkja áður en bólusett er gegn hundaæði.
    • Gæludýrið skal vera bólusett gegn hundaæði. Það bóluefni sem notað er í Finnlandi endist oftast í eitt ár fyrir gæludýr sem ekki er ársamalt og í tvö ár fyrir eldri gæludýr. Bólusetninguna skal framkvæma í síðasta lagi 21 degi fyrir komuna til Finnlands. Ef gæludýrið hefur verið bólusett áður og ný bólusetning er framkvæmd áður en sú fyrri er runnin út, er ekki nauðsynlegt að fara eftir reglunni um 21 dag. Það þarf ekki að bólusetja kettlinga og hvolpa sem eru yngri en þriggja mánaða ef komið er með dýrin beint frá hunda- eða kattaræktanda. Krafist er staðfestingar frá ræktanda um að dýrið komi beint frá ræktunarstöð.
    • Í síðasta lagi 30 dögum fyrir komuna til Finnlands þurfa hundar og kettir að fara í bandormahreinsun og taka þar til gerð ormalyf. Ekki er gerð krafa um lyfjagjöf ef dýrið kemur beint frá Svíþjóð eða Noregi, að Svalbarða undanteknum, eða ef dýrið er yngra en þriggja mánaða. Lyfjagjöfin er heldur ekki skilyrði ef ekki eru liðnar 24 klukkustundir frá því að það fór frá Finnlandi.
    • Séu gæludýr meðferðis á ferðalögum í löndum innan Evrópusambandsins er skylda að hafa gæludýravegabréf meðferðis. Innan Evrópusambandsins er hægt að kaupa vegabréfið hjá þeim dýralækni sem sinnir viðkomandi dýri. Þegar dýralæknirinn gefur vegabréfið út, gengur hann úr skugga um að dýrið sé annaðhvort merkt með örflögu eða húðflúri og að dýrið sé bólusett gegn hundaæði. Gæludýravegabréfið fellur úr gildi þegar hundaæðisbólusetningin rennur út. Dýralæknirinn skráir einnig upplýsingar um aðrar bólusetningar í vegabréfið og ormalyfjagjafir.

    Nánari upplýsingar um reglur og bönn hjá matvælaöryggisstofnuninni Evira (www.evira.fi).


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 19.10.2009


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang