Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Skráning í þjóðskrá

    Norðurlandasamningur um almannaskráningu gildir um einstaklinga sem flytja til Finnlands frá öðru norrænu ríki. Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð eru aðilar að samningnum en hann nær einnig til Álandseyja, Færeyja og Grænlands. Samkvæmt samningnum eru Norðurlönd eitt skráningarsvæði og því getur enginn átt lögheimili í tveimur norrænum ríkjum samtímis. Reglur í því landi sem flutt er til kveða á um hvar fólk á að skrá sig. Norrænir ríkisborgarar þurfa ekki dvalarleyfi í Finnlandi.
     


    Kennitala

    Einstaklingar sem hyggja á fasta búsetu í Finnlandi, þ.e. lengur en 12 mánuði, fá finnska kennitölu þegar þeir mæta í eigin persónu á skrifstofu í viðkomandi sveitarfélagi til að skrá sig inn í landið.

    Einstaklingar sem hyggjast búa tímabundið í Finnlandi, þ.e. skemur en 12 mánuði, geta einnig verið skráðir í þjóðskrá. Einstaklingar fá finnska kennitölu þegar upplýsingar um þá hafa borist finnskri þjóðskrá. Kennitalan helst þótt aðeins sé um að ræða tímabundna búsetu í Finnlandi.

    Þegar einstaklingar koma til Finnlands til starfa hjá finnskum atvinnurekanda er alltaf krafist tímabundinnar skráningar. Skráning fer þannig fram að einstaklingur mætir í eigin persónu og framvísar persónuskilríkjum til þess að skrá sig, á skrifstofu í viðkomandi sveitarfélagi, hjá skattayfirvöldum eða Tryggingastofnun (FPA). Launþegar þurfa að skrá sig til þess að njóta félagslegra réttinda á við aðra íbúa landsins.


    Sveitarfélag

    Ef gert er ráð fyrir að búsetan í Finnlandi vari í 12 mánuði eða lengur (s.k. föst búseta) þarf að tilkynna skrifstofu í viðkomandi sveitarfélagi þetta í eigin persónu og framvísa skilríkjum, til dæmis vegabréfi, skilríkjum sem lögregluyfirvöld hafa gefið út eða sambærilegum skjölum. Þegar skráningarskjöl eða kennitala hafa borist frá landinu sem flutt var frá senda skráningaryfirvöld þar í landi upplýsingarnar til finnskra yfirvalda.

    Þegar einstaklingur hyggst setjast að í Finnlandi er lögheimili hans skráð í finnsku sveitarfélagi sem skrifstofa í viðkomandi sveitarfélagi tilkynnir þjóðskrá.

    Í Finnlandi er almannaskráning í höndum skrifstofu í viðkomandi sveitarfélagi (www.maistraatti.fi). Hagstofan (www.vrk.fi) fer með yfirstjórn almannaskráningar í landinu.

    Ef einstaklingur sem flyst á milli landa á húsnæði eða heimili í tveimur mismunandi norrænum ríkjum, skera skráningaryfirvöld í landinu sem flutt er til úr um hvort lögheimili hans verður skráð þar í landi.

    Þó þarf að sækja sérstaklega um almannatryggingar sem fylgja búsetu hjá Tryggingastofnun (www.fpa.fi).


    Flutningstilkynning 

    Einstaklingar sem flytja frá útlöndum til Finnlands, frá Finnlandi til útlanda eða innanlands í Finnlandi þurfa að tilkynna um flutninginn hjá viðkomandi sveitarfélagi. Einnig þarf að tilkynna um flutning þótt um tímabundna búsetu sé að ræða, ef dvalist er í öðru sveitarfélagi lengur en í þrjá mánuði.

    Flutning má tilkynna á þar til gerðu eyðublaði eða rafrænt á netinu. Einnig er hægt að tilkynna flutning innanlands í Finnlandi símleiðis. Nánari upplýsingar um flutningstilkynningar eru á vefslóðinni www.flyttanmalan.fi.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 13.10.2009


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang