Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Að flytja frá Finnlandi

    Að flytja búferlum krefst undirbúnings, einnig í landinu sem maður flytur frá. Munið að það er munur á því hvort maður flytur um stundarsakir eða hvort flutningurinn er endanlegur. 


    Flutningstilkynning

    Samkvæmt finnskum lögum um skráningu í þjóðskrá á maður að láta vita þegar maður flytur frá landinu. Ef um tímabundinn flutning er að ræða er nóg að tilkynna flutninginn á pósthúsinu. 


    Skráning í þjóðskrá

    Norðurlöndin hafa gert með sér samning um skráningu í þjóðskrá. Samkvæmt honum geta norrænir ríkisborgarar aðeins verið skráðir í einu norrænu landi. Reglurnar um skráningu í þjóðskrá eru mismunandi frá einu landi til annars. Í Noregi, Danmörku og Íslandi ber manni skylda til að skrá sig eftir að hafa verið í landinu í sex mánuði samfleytt og í Svíþjóð eftir 12 mánaða dvöl, án hlés. 


    Almannatryggingar 

    Samkvæmt Evrópusambandsreglugerð 1408/71 hafa launþegar, sjálfstæðir atvinnurekendur, lífeyrisþegar, námsmenn og fjölskyldur þeirra ferðafrelsi innan Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins. Þegar maður nýtir sér þennan rétt, heyrir maður undir almannatryggingakerfi eins lands í einu. Almannatryggingagreiðslur sem maður hefur fengið í því landi sem maður hefur áður búið í er hægt að taka með sér til annars lands innan ESB og EES ef viðkomandi flytur frá því landi þar sem greiðslurnar hafa farið fram. Samkvæmt reglugerð 1408/71 eru þessar greiðslur meðal annars lífeyrir, heilsugæsla og sjúkratrygging, atvinnuleysisbætur, slysa- og vinnuslysatrygging og fjölskyldubætur. 

    Við varanlegan flutning heyrir maður undir almannatryggingakerfi landsins sem maður flytur til. Ef maður veit að um varanlegan flutning er að ræða, þegar flutningarnir eiga sér stað, ber manni að skila Kela-kortinu til Tryggingastofnunar (Kela) áður en maður flytur. Ef maður flytur til Evrópusambandslands sem ekki tilheyrir Norðurlöndunum, getur maður sótt um að fá að tilheyra almannatryggingakerfinu í Finnlandi. Frekari upplýsingar um almannatryggingar eru á (Kela).

    Bótagreiðslur sem byggjast á því að maður hefur verið heimilisfastur í Finnlandi eru sjúkratryggingar, ellilífeyrir, greiðslur til foreldra og aðrar bætur til foreldra. Ef þú hefur fengið greiðslur af þessu tagi, hafðu þá samband við Tryggingastofnun (Kela) áður en þú flytur.      


    Skattur 

    Finnskur ríkisborgari sem flytur úr landi er yfirleitt skattskyldur í Finnlandi til ársloka það ár sem hún eða hann flytur úr landi og næstu þrjú ár þar á eftir, nema því aðeins að viðkomandi geti sannað að hún eða hann hafi engin veruleg tengsl við Finnland lengur. Sá skattskyldi á þar fyrir utan að fylla út endanlegt skattframtal í Finnlandi. 

    Hin almenna skattskylda þýðir að manni ber skylda til að greiða skatt af tekjum í viðkomandi landi og af tekjum frá öðrum löndum.  


    Atvinnuleysissjóðir 

    Segja má að aðalreglan sé sú að launþegar geti aðeins verið með í einum atvinnuleysisjóði í einu. Þegar maður flytur ætti maður að hafa sem fyrst samband við atvinnuleysissjóð í landinu sem flutt er til. Ef umsækjandinn vill flytja sjóðsréttindi frá öðru Evrópusambandslandi eða landi innan Evrópska efnahagssvæðisins, verður hún eða hann að koma með útfyllt E 301-eyðublað frá þeim sjóði sem viðkomandi var félagi í síðast. Þegar eyðublaðið hefur verið afhent nýjum sjóði, er viðkomandi ekki félagi í fyrri sjóðnum. Frekari upplýsingar er að fá hjá atvinnuleysissjóðnum þínum eða hjá samtökum lífeyrissjóða á (Työttömyyskassojen Yhteisjärjestöltä).


    Atvinnulausir í atvinnuleit

    Atvinnulaus einstaklingur sem er í atvinnuleit á rétt á atvinnuleysisbótum á meðan hún eða hann leitar að vinnu innan ESB eða EES (að Færeyjum og Grænlandi undanteknum). Samkvæmt samningnum heldur atvinnulaus einstaklingur, sem er í atvinnuleit, bótarétti sínum í þrjá mánuði á meðan hún eða hann leitar að vinnu í ESB- eða EES-landi, svo framarlega sem viðkomandi uppfyllir skilyrði (Kelan Työttömyyspäiväraha) og á rétt á atvinnuleysisbótum. Það er skilyrði að viðkomandi hafi verið atvinnulaus en í leit að vinnu í Finnlandi í að minnsta kosti fjórar vikur áður en farið er til annars lands í atvinnuleit. Þeir einstaklingar sem hafa náð hámarks dagafjölda á atvinnuleysisbótum (500 dagar) geta ekki fengið þessar bætur með sér á meðan leitað er að atvinnu í öðru landi. 

    Áður en haldið er af stað, á sú eða sá sem er í atvinnuleit að biðja Tryggingastofnun (Kela) eða atvinnuleysissjóðinn um að staðfesta að viðkomandi hafi rétt á atvinnuleysisbótum í Finnlandi (eyðublöð E303/0-E303/5).


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 24.09.2008


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang