Almennar reglur um innflutning
Ökutæki sem
ætlað er til aksturs í Finnlandi þarf að skrá hjá Tollstjóra svo hægt sé að
reikna út gjöld vegna ökutækisins. Einnig verður að skrá ökutæki hjá Tollstjóra
sem flutt eru inn frá öðrum ríkjum en ESB-ríkjum, Noregi og Íslandi. Tollstjóri
ákveður tolla og önnur gjöld og veitir leyfi til skráningar á ökutækinu. Nánari
upplýsingar eru á vef Tollstjóra (www.tulli.fi).
Notkun fyrir skráningu
Ökutæki sem á að skrá í
Finnlandi má aka skattfrjálst í allt að þrjá mánuði. Þó að því tilskildu að
búið sé að tilkynna Tollstofu um fyrirhugaðan akstur áður en hann hefst í
Finnlandi. Ef ökutækið er ekki skráð á EES-svæðinu eða skráningin er gengin úr
gildi þarf að sækja um innflutningsleyfi hjá bifreiðaeftirlitsstöð eða
Tollstjóra. Þá þarf ökutækið að vera tryggt samkvæmt finnskum lögum. Ökutækið
þarf að skrá til skattlagningar áður en fimm dagar eru liðnir frá því að
tilkynning um akstur hefur verið staðfest. Að öðrum kosti gengur akstursleyfi
úr gildi.
Flutningafarartæki
Flutningafarartæki frá öðrum ríkjum en ESB-löndum,
Noregi og Íslandi eru undanþegin tollum og virðisaukaskatti ef þau uppfylla
kröfur um tollfrelsi. Lækka má innflutningsgjöld á ökutækjum um allt að 13.450
evrum ef skilyrðum sem kveðið er á um í lögum um gjöld af bifreiðum er
fullnægt. Aðeins er hægt að samþykkja lækkun innflutningsgjalda á ökutækjum sem
innflytjandi tekur með sér inn í landið.
Gjöld má lækka ef eftirfarandi skilyrði eru
uppfyllt:
- Einstaklingur flytur ökutækið inn til eigin nota
- Sá sem ökutækið flytur inn er kominn til að setjast að í
landinu
- Eigandinn hafi dvalist erlendis í samfleytt a.m.k. eitt
ár áður en flust er til Finnlands.
- Ökutækið hafi við flutninginn verið í eigu innflytjanda
eða maka hans, eða umráðum sem leiða til eignarréttar, eða innflytjandinn hafi
notað það í a.m.k. sex mánuði.
- Ökutækið sé flutt inn í landið í tengslum við
búferlaflutninga.
- Eigandinn hafi ekki stundað fullt nám árið áður en
flutningur á sér stað.
- Hafi innflytjandi áður flutt inn farartæki með lækkuðum
eða engum innflutningsgjöldum, er gert ráð fyrir að ekki hafi verið hægt að
flytja það inn án gjalda á tímabili í aðdraganda flutningsins til Finnlands.
Að öðrum kosti þarf
innflytjandi að greiða innflutningsgjald af ökutæki sem flutt er inn sem hluti
af búslóð, og er þá miðað við þá upphæð verðsins sem er hærri en
skattleysismörk. Tilkynnt er um innflutningsgjöld farartækis hjá Tollstjóra. Tollstjóri
annast útreikninga á innflutningsgjöldum og tilkynnir skriflega um ákvörðun þar
að lútandi. Um leið er veitt leyfi til skráningar á ökutækinu. Nánari upplýsingar
eru á vef Tollstjóra (www.tulli.fi).
Tímabundinn skattfrjáls akstur ökutækis
Einstaklingar sem eiga
lögheimili annars staðar en í Finnlandi geta flutt inn tímabundið ökutæki sem
eru skráð í öðru ríki án þess að greiða af þeim innflutningsgjöld. Þá er
aksturleyfi veitt ferðamönnum og öðrum sem aka erlendum fyrirtækjum vegna
starfa sinna.
Í sumum tilvikum geta
einstaklingar með lögheimili í Finnlandi ekið tímabundið farartækjum sem eru
skráð erlendis án þess að greiða af þeim innflutningsgjöld. Lög um
innflutningsgjöld ökutækja kveða á um níu flokka þar sem hægt er að veita
tímabundna undanþágu frá skatti vegna aksturs á erlendu ökutæki. Það á t.d. við
um þjónustu eða viðgerðir á bifreiðum, eða þegar óskráðar bifreiðar eru fluttar
innanlands með leyfi skattayfirvalda frá lendingarstað eða til
útflutningsstaðar. Þá má aka bifreið tímabundið án þess að greiða gjöld, ef það
er í tengslum við prófanir eða kynningar. Þá fela lögin í sér ákvæði um
tímabundinn akstur bifreiða í eigu fyrirtækja án þess að greiða þurfi
innflutningsgjöld. Nánari upplýsingar eru á vef Tollstjóra (www.tulli.fi).
Skráning
Við skráningu ber að hafa eftirfarandi gögn meðferðis:
- Gild trygging fyrir akstri.
- Vottorð um skoðun við skráningu.
- Skráningarskírteini frá og með síðasta erlenda eiganda.
Sé maður búinn að fá tilkynningu um bifreiðaskatt og hefur hana meðferðis, er
nóg að hafa skráningarskírteini meðferðis með nafni þess sem er á
tilkynningunni um bifreiðaskatt.
Ökutæki sem flutt eru inn í
landið þurfa að fara í gegnum skoðun áður en þau eru skráð á skoðunarstofum. Þá
þurfa skjöl sem ökutækinu fylgja að sýna fram á að ökutækið uppfylli allar
kröfur. Upplýsingar um hvaða skjala er krafist við skoðun vegna skráningar er
að finna á vef um skoðunarstofur (www.ake.fi ).
Þegar bifreið hefur verið
skoðuð eða samþykkt er hægt að skrá hana. Að skráningu lokinni fær eigandinn
skráningarskjöl og finnsk skráningarmerki. Verið viðbúin því að þurfa að sýna
persónuskilríki við skráningu bifreiðar.
Nánari upplýsingar um
skráningu bifreiða fást hjá Skráningarstofu ökutækja í síma +358
(0)20 696 330 eða á vefslóðinni www.ake.fi.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 12.01.2010