Bankareikningur og bankaþjónusta í Finnlandi
Bankar bjóða upp á ýmsar tegundir
bankareikninga fyrir dagleg bankaviðskipti, sparnað og aðra ávöxtun. Bankarnir
bjóða upp á mismunandi kjör.
Ekki er krafist finnskrar kennitölu við
stofnun bankareiknings en viðskiptavinir þurfa þó ætíð að sýna persónuskilríki.
Öruggast er að vísa fram gildu vegabréfi eða opinberum persónuskilríkjum. Í
sumum bönkum nægir að sýna norrænt ökuskírteini.
Hafi viðskiptavinur ekki finnska kennitölu
getur honum reynst erfitt að fá t.d. greiðslukort eða aðgang að netbanka.
Oft þarf gild rök fyrir því að njóta
grunnþjónustu bankanna, t.d. þarf viðskiptavinurinn að eiga lögheimili í
Finnlandi, starfa þar eða stunda nám. Til sönnunar á starfi er hægt að sýna
ráðningarsamning eða launaseðil. Námsmenn geta framvísað námsvottorði frá
menntastofnun eða háskólaskírteini. Þá er hægt að biðja bankann í því landi sem
flutt er frá um að skrifa meðmæli til staðfestingar á að viðskiptavinurinn sem
hyggst stofna bankareikning sé viðskiptavinur hjá viðkomandi banka. Bankarnir
hafa leyfi til að kanna fjárhagsaðstæður viðskiptavinar sem hyggst stofna
bankareikning.
Nánari upplýsingar um bankaviðskipti í
Finnlandi veita bankarnir sjálfir og Trygginga- og fjármálaráðgjöfin(www.fine.fi).
Tryggingar
Fyrir utan lögbundnar tryggingagreiðslur (t.d.
lífeyri og sjúkratryggingar) eru ýmsar aðrar tryggingar, þar á meðal ábyrgðar-
og slysatrygging eigenda ökutækja, kaskótryggingar og heimilistryggingar. Heimilistrygging
er t.d. skilyrði fyrir því að fá leiguhúsnæði. Öllum eigendum vélknúinna
ökutækja er skylt að kaupa ábyrgðar- og slysatryggingu, en þeim er frjálst
hvort þeir velja s.k. kaskótryggingu. Nánari upplýsingar um nauðsynlegar
tryggingar veita tryggingafyrirtæki í Finnlandi og Trygginga- og
fjármálaráðgjöfin (www.fine.fi).
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 08.07.2010