Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Meðganga og fæðing

    Fæðingarorlofsgreiðslur til einstaklinga sem eru búsettir í Finnlandi hefjast á greiðslum til mæðra í sjálfstæðu fæðingarorlofi þeirra, sem umsækjandi getur hafið í fyrsta lagi 50 virkum dögum en í síðasta lagi 30 dögum fyrir áætlaðan fæðingardag. Nánar er fjallað um fæðingarorlofsgreiðslur til mæðra og skilyrði fyrir þeim í kafla um aðrar foreldrabætur. Hér á eftir verður greint í stuttu máli frá aðstoð vegna meðgöngu og fæðingar. 


    Mæðraaðstoð

    Umsækjandi getur valið á milli fæðingarpakka og 140 evra í reiðufé sem eru undanþegnar skatti. Andvirði fæðingarpakkans er hærra en upphæðin í reiðufé. Umsækjandi öðlast rétt til mæðraaðstoðar þegar hún er gengin að minnsta kosti 154 daga á leið. Áður en hún fær aðstoðina þarf hún að fara í skoðun hjá lækni eða hjá mæðraráðgjöf áður en liðnir eru fjórir mánuðir af meðgöngu. Í fæðingarpakka eru meðal annars ungbarnaföt og hreinlætisvörur. Fæðingarpakkinn er sendur í pósti en hafi reiðufé verið valið er það yfirfært á bankareikning hennar. Fæðingarpakkar eru ekki sendir til útlanda.  


    Fæðing

    Konur sem eru búsettar í Finnlandi eiga rétt á læknisþjónustu í opinberri heilsugæslu. Í því felast mæðraskoðanir og hjúkrunaraðstoð við fæðingu og eftir hana. Yfirleitt eru heimsóknir á heilsugæslustöðvar og sjúkrahús gjaldsettar. Kveðið er á um hámarksgjald í lögum og reglugerðum um greiðslu sjúklinga fyrir félags- og heilbrigðisþjónustu. Gjöldin geta verið mismunandi eftir sveitarfélögum.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 18.08.2009


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang