Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Finnland
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Finnlandi

    Atvinnu- og dvalarleyfi

    Norrænir ríkisborgarar mega búa og vinna hvar sem er á Norðurlöndum án þess að hafa atvinnu- og/eða dvalarleyfi. Þó verður maður að tilkynna hagstofunni í Finnlandi um flutninginn ef maður ætlar að vera þar lengur en 12 mánuði (sjá Skráning í þjóðskrá).

    Ríkisborgarar frá Evrópusambandslöndum og ríkisborgarar frá Sviss og Liechtenstein þurfa heldur ekki dvalar- eða atvinnuleyfi. Ríkisborgarar frá þessum löndum þurfa þó að skrá sig hjá á næstu lögreglustöð innan þriggja mánaða frá því að þeir koma til Finnlands. 

    Ríkisborgarar frá öðrum löndum en þeim sem nefnd eru hér að ofan þurfa að sækja um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun (Ulkomaalaisvirasto). Sé umsækjandinn í öðru landi þegar umsókn er gerð, skal umsókninni skilað til finnska sendiráðsins eða ræðismanns Finnlands í viðkomandi landi. 

    Einstaklingar sem hafa gilda vegabréfsáritun eða dvalarleyfi í landi sem er aðili að Schengen sáttmálanum, þurfa ekki að sækja um vegabréfsáritun í öðru Schengen-landi. Þetta þýðir að einstaklingar sem hafa dvalarleyfi í norrænu landi þurfa ekki að sækja um vegabréfsáritun í öðru norrænu landi.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 19.05.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang