Flest námsfólk í Danmörku býr annað hvort í íbúðum eða á stúdentagarði (sjá upplýsingar um kaup og leigu á íbúðum í kaflanum um húsnæði).
Ef ekki tekst að finna íbúð er hægt að sækja um húsnæði á stúdentagarði. Yfirleitt er ódýrara að búa á stúdentagarði en í íbúðum en rýmið er að sjálfsögðu minna. Húsaleigan er lág og oft er erfitt að finna íbúðir og því er biðlistinn á stúdentagörðum yfirleitt langur. Þess vegna er ráðlegt að skrá sig eins snemma og hægt er á biðlista að húsnæði á stúdentagörðum.
Til þess að sækja um herbergi á stúdentagörðum er haft beint samband við stúdentagarðinn eða námsráðgjafa á menntastofnuninni þar sem námið er stundað.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 24.09.2008