Einstaklingar með norrænt ríkisfang geta að vissum skilyrðum uppfylltum fengið danskt ríkisfang með því að afhenda yfirlýsingu til opinberra yfirvalda. Til þess að fá danskt ríkisfang þarf umsækjandinn að:
-
hafa hreint sakavottorð
-
vera ekki ákærður fyrir brot á refsilögum
-
vera á aldrinum 18 - 23 ára
-
hafa haft fasta búsetu í Danmörku í alls 10 ár, þar af a.m.k. 5 ár á undanförnum 6 árum.
Hafa ber í huga að það getur tekið allt að einu og hálfu ári að afgreiða umsókn um ríkisfang í Innflytjendaráðuneytinu (Integrationsministeriet).
Ríkisfang við fæðingu
Ríkisfang barns við fæðingu ræðst af ríkisfangi og hjúskaparstétt foreldranna. Ef foreldrarnir eru ekki giftir við fæðingu barnsins er ríkisfang barnsins danskt ef ríkisfang móðurinnar er danskt, óháð ríkisfangi föður. Ef aðeins faðirinn hefur danskt ríkisfang hlýtur barnið aðeins danskt ríkisfang ef það er fætt 1. febrúar 1999 eða síðar.
Ef foreldrarnir eru giftir þegar barnið kemur í heiminn hefur barnið danskt ríkisfang ef það er fætt fyrir 1. janúar 1979 og aðeins faðirinn hefur danskt ríkisfang. Ef barnið er fætt síðar en 1. janúar 1979 er það danskt ef annað hvort foreldranna er danskt.
Tvöfalt ríkisfang
Hægt er að hafa tvöfalt ríkisfang í Danmörku, en yfirvöld hafa það að meginreglu að forðast tvöfalt ríkisfang eins mikið og hægt er. Ef einstaklingar með danskt ríkisfang fá ríkisfang í öðru landi, missa þeir sjálfkrafa danska ríkisfangið.
Nánari upplýsingar um ríkisfang á vef Innflytjendaráðuneytisins(Integrationsministeriet).
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Síðast uppfært 04.11.2009