Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Danmörk
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Danmörku

    Bankareikningur

    Allir geta stofnað bankareikning í Danmörku. Þó krefjast bankarnir þess að fólk framvísi persónuskilríkjum með mynd áður en reikningur er stofnaður. Því er ráðlegt að taka vegabréfið með sér þegar stofna á bankareikning.  

    Til þess að fá greiðslukort eða taka lán þurfa einstaklingar að vera skráðir í Danmörku og hafa danska kennitölu (CPR-nummer). Það er bönkunum í sjálfvald sett hvort þeir gefa út greiðslukort eða veita lán og því er mikilvægt að ræða við bankann um hvaða möguleikar eru í boði.  


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 19.03.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang